Bergsson og Blöndal bjóða hlustendum eins og áður í ferðalag til fortíðar og árin sem voru undir voru 1958, 1968, 1978 og 1988.
En hvað var að gerast í byrjun nóvember árið 1988? Ja það var allt vitlaust í borgarstjórn þegar Magnús L Sveinsson forseti borgarstjórnar vísaði Sigrúnu Magnúsdóttur frá Framsókn úr ræðustól. og umræðuefnið - framúrkeyrsla í áætlunum!
Og 1978 var framhaldsmyndaflokkurinn Ég Kládíus var að byrja í sjónvarpinu. Það var eftirminnilegt.. en man einhver hvað var í gangi árið 1968? Jú Bandaríkjamenn voru að kjósa sér nýjan forseta. Sá hét Richard Nixon