"Kona beit konu Akureyri!" varð að frétt í Morgunblaðinu þriðjudaginn 27. janúar árið 1987. "Sunnlendingar biðja um gullkálf" fullyrti Þjóðviljinn þann 28. janúar 1977 og hvað finnum fréttnæmt frá árinu 1967 - jú 27. janúar birti Alþýðublaðið frétt frá Moskvu. "Samningurinn um friðsamlega hagnýtingu himingeimsins var undirritaður í Moskvu í dag." 10 árum fyrr bárust dramatískar fréttir frá fréttaritara Tímans á Stokkseyri - "í gær, sunnudag, fóru tveir ungir menn héðan af Stokkseyri upp á Selfoss með áætlunarbil til þess að skemmta sér en sú för endaði þó ekki sérlega skemmtilega, þar sem þeir urðu að dveljast í alla nótt í bíl, sem sat fastur í snjó á leiðinni hingað frá Selfossi"
Já í tímaflakki dagsins héldum við okkur við síðustu dagana í janúar árin 1987, 77, 67 og 57.
Tímaflakkið með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2