Enn skemmta Bergsson og Blöndal sér konunglega við að dúndra sér í tímavélinni aftur í tímann. Að þessu sinni heimsóttu þau vikuna í kringum 23. september á árunum 1953, 1963, 1973 og 1983.
Árið 1953 hafði kvikmyndin Moulin Rouge slegið í gegn og fært okkur dásamlega tónlist sem enn lifir.
Árið 1963 var lagið Heatwave á toppnum og hið ótrúlega Profumo mál var á allra vörum í Bretlandi.
Árið 1973 mætti Tina nokkur Turner ásamt sínum Ike og tryllti liðið með laginu um Nutbush og njósnatæki fundust í Kleifarvatni
Árið 1983 voru herðapúðarnir og hárlakkið komið til sögunnar. Við heyrðum t.d. klassíkina Dolce Vita og þjóðin lá í sólböðum á sólbaðsstofum