Truthbomber Podcastið

Truthbomber Podcastið

Download on the App Store

Truthbomber Podcastið episodes

  • 20. þáttur - Leyndardómar landsbyggðarinnar ásamt Stjána Gaddavír

    Það er tekið djúpt í árina þetta skiptið, þar sem Truthbomber fá heimsókn frá Stjána Gaddavír og ræða svo mörg málefni að það er varla hægt að nefna þau öll.

    Landsbyggðin, heitur brauðréttur, sifjaspell og páfagaukar sem tala dönsku koma m.a. við sögu.

    Óla Máttlausa viljum við fyrirfram biðja afsökunar

    2 hr 4 min
  • 19. þáttur - Heilsukvíði og Kafkaískt hygge

    Truthbomber býður haustið velkomið og sötrar á lafþunnu tei raunveruleikans.

    Andleg veikindi, tölvuleikjagerð og endurkoma vandamálahornsins mjaka sér inn í þetta skiptið.

    Blint fólk viljum við fyrirfram biðja afsökunar [insert braille text]

    1 hr 1 min
  • 17. þáttur - Lausaleiksbörn og trompetleikarinn Pétur

    Truthbomber allra landsmanna hnusar af leyndardómum Íslensks samtímalífs.

    Hvað gerist bak við luktar dyr á Hverfisgötu? Af hverju borða Akureyringar bara rusl? Hlustið, lærið og njótið.

    Skítamóral viljum við fyrirfram biðja afsökunar (plís ekki lemja okkur)

    1 hr 13 min
  • 15. þáttur - Truthbomber kúgar bussurnar

    Í þessum þætti er metnaði og frumleika hent út um gluggann og þess í stað er ekkert nema klósetthúmor og ærumeiðingar. Svona er nú fyrir manni komið. Maður hefði kannski getað tekið meiraprófið eða æft körfubolta eða eitthvað, en nei. Bara kúkabrandarar og nöldur.

    Þetta er það sem kennarar landsins eru að reyna að koma í veg fyrir með því að kenna líkindareikning og Brennu-Njáls sögu. En nei, auðvitað þurfti maður að rebela og eyða svona 6 árum skólagöngunnar í að vera í fýlu og að teikna typpi á flest snertanleg yfirborð skólabygginganna. Þvílík tragedía.

    Dóra DNA viljum við fyrirfram biðja afsökunar.

    50 min

About Truthbomber Podcastið

From the publisher's feed

Bjartasta von Íslenskrar hlaðvarpsflóru

Hlustaðu eða hlustaðu ekki, þú munt iðrast hvors tveggja.