
Sign up to save your podcasts
Or


Truthbomber allra landsmanna skrópaði í janúar en skellir einum nettum á borðið til að forðast fleiri fjarvistaskráningar.
Forsetaframboð, snjókarlar og Eurovision eru meðal þess sem borið er á borð í þetta skiptið.
Árlegt jólaboð Truthbomber er ekki af verri endanum þetta árið
Riff Raff, Ikea geitin, hatursglæpir vegna rabarbara og kapítalismi koma meðal annars við sögu.
Gleðileg jól til allra nema Amaury Guichon og Ísraelshers
Truthbomber allra landsmanna fagnar 1. árs starfsafmæli sínu með líflegum umræðum um tímana tvenna.
Nostalgían, innanhúsarkitektúr og umferðaröngþveiti ber meðal annars á góma til að lyfta greyið hlustendunum upp úr svartasta skammdeginu.
Grindvíkinga viljum við fyrirfram biðja afsökunar
www.patreon.com/Truthbomber, þar sem ekkert af viti gerist
Konur allra landa sameinist og leggið á hlustir, þar sem Truthbomber kemur færandi hendi með þátt sérstaklega handa ykkur!Stjörnuspá, samskipti kynjanna og raðmorðingjar ásamt ýmsu er krufið til mergjar.Viljum biðja hjólreiðafólk og hljómsveitina Tool fyrirfram afsökunar.
Slakaðu þér í sófann, opnaðu einn kaldan og gargaðu á sjónvarpið þitt í móðursýkiskasti á meðan einhverjir guttar leika sér með bolta. Í þetta sinn eru Truthbomber komnir í dauðafæri og þruma sannleiknum í netið.
Menn eru menningarlegir í þetta skiptið. Varpaðu af þér flíspeysunni, smelltu á þig alpahúfu og sötraðu á lífinu, leiknum og listinni með Truthbomber.
Viljum biðja Svíþjóð fyrirfram afsökunar.
Þetta árið verða bollurnar fylltar með landsbyggðarstemningu, eitraðri karlmennsku og eldfjallaerótík. Þessu sporðrennir Truthbomber og skolar niður með Lewis Hamilton djús.
From the publisher's feed
Bjartasta von Íslenskrar hlaðvarpsflóru
Hlustaðu eða hlustaðu ekki, þú munt iðrast hvors tveggja.