Share Vaxtaverkir
Share to email
Share to Facebook
Share to X
By Útvarp 101
5
11 ratings
The podcast currently has 13 episodes available.
Í þessum síðasta þætti ársins (og síðasta þætti í bili) gera Vaxtaverkir þættina upp og taka létta samantekt á því sem teymið lærði á árinu. Í lok þáttar er síðan farið yfir fjárhagsleg markmið fyrir árið 2022, því jú það er alltaf betra að segja markmiðin upphátt. Takk fyrir okkur elsku hlustendur, njótið vel og gleðilegt nýtt ár! Þangað til næst..
Í þessum þætti tökum við saman sjö misgóð ráð sem er gott að hafa með sér í jólagjafainnkaupunum og ættu að hafa góð áhrif á veskið.
Hér fáið þið svokallaðan gelluþátt - við fengum athafnakonuna Birgittu Líf Björnsdóttur til okkar (kemur í ljós ef þið hlustið á þáttinn hvers vegna hún fær þann titil af mörgum). Við förum yfir mörg mikilvægt atriði:
Þetta eru allt mikilvægar spurningar fyrir gellur og ekki gellur. Njótið.
Gestur þáttarins er Stefanía Ásmundsdóttir er með mjög þægilega útvarpsrödd. Hún vinnur hjá ráðninga- og ráðgjafafyrirtækinu Hagvangi og er augljóslega fædd í starfið. Við förum fyrst yfir atvinnuviðtöl og færum okkur svo yfir í launaviðtöl. Ef þú ert á leiðinni í eitt slíkt á næstunni (eða bara ekki) þá er þetta þátturinn fyrir þig. Komdu þér vel fyrir og njóttu.
Jæja nú er sumarfríi númer fimm lokið og Vaxtaverkir eru mættir, aldrei verið ferskari. Í þessum þætti duttum við aðeins í fréttaskýringagírinn. Hvað er Evergrande? Við stiklum á stóru og gerum okkar besta í að útskýra hvers vegna þetta stóra fasteignaþróunarfélag er í brennidepli í fjármálaheiminum.
Við tökum saman fimm góð ráð til að fylgja sama hvort markaðurinn sé að leita upp eða niður. Njótið.
Hefurðu velt fyrir þér hvernig sé best að ræða fjármál við maka? Hvort sameiginleg fjármál henti eða ekki? Hvernig sé best að setja sér sameiginleg markmið? Eða ef þú átt ekki maka, hvort það séu engar pælingar fyrir þig í þessum þætti? Svarið er jú.
Við fengum frábæran gest til okkar, hann heitir Guttormur og er vörustjóri hjá Meniga. Guttormur er með meistaragráðu í að ræða við maka sinn um fjármál - grín. Hann er samt reynslubolti í sameiginlegum fjármálum og stórskemmtilegur. Hér fáið þið enn einn þáttinn sem er stútfullur af fróðleik en á sama tíma mjög skemmtilegur (hlutlaust mat). Njótið!
Elísabet Metta og Ágúst Freyr eru stofnendur Maikai. Þar selja þau acaí skálar með svokölluðum acaí berjum, svona nánast eins og hollur bragðarefur. Við fengum þau til okkar í mjög svo einlægt spjall um reksturinn og lífið. Þau eru svo ótrúlega filterslaus og skemmtileg að þetta viðtal gat ekki annað en orðið skemmtilegt. Njótið.
Minnum á afsláttarkóðan Vaxtaverkir inná tan.is fyrir alla þá sem vilja næla sér í smá brúnku fyrir helgina.
Við byrjum á öllu þessu allra helsta um rafmyntir og hvernig þær virka en síðan er líka bara forvitnilegt að vita hvaða æsing Elon Musk er alltaf að reyna búa til í kringum Bitcoin, eru Seðlabankar heimsins að fara taka upp rafmyntir eða er Bitcoin bara komið til að vera, er Bitcoin í "crypto"heiminum Simone Biles í fimleikaheiminum? Árið er 2021, hversu líklegt er að jafn orkufrek mynt eins og Bitcoin eigi eftir að lifa af? Þetta og margt fleira í 5. þætti þar sem Kjartan Ragnars hjá Myntkaupum fer með okkur yfir málin.
Lánamál eru og verða alltaf flókin.
Kristín leggur spurningar fyrir Brynju á borð við:
Hvað er verðtryggt og óverðtryggt lán?
Af hverju er fólk hrætt við þessi verðtryggðu lán?
Hver er munurinn á jöfnum afborgunum og jöfnum greiðslum?
Veðhlutfall?
Hvernig veit ég hvaða lán hentar mér?
Hverju þarf maður að huga að áður en maður fer í greiðslumat?
Séreignarsparnaður, hvað er það og hvernig get ég nýtt hann sem best?
Inná hvaða lán er best að setja séreignarsparnaðinn sinn?
Uppgreiðslugjald? Hvað er það og af hverju þarf maður að pæla í því?
Hvað er fasteignamat?
Hvernig veit ég hvenær er gott að endurfjármagna?
Hlutdeildarlán?
The podcast currently has 13 episodes available.