Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Staðarandi og steinsteypa, Tálkvendi í 79 af stöðinni, Haukur Þorgeirs pistill#5
    Í þætti dagsins ræðum við við Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, um erindi sem hún flutti á aldarafmælismálþingi um rithöfundinn Indriða G. Þorsteinsson, þar sem hún greindi persónu Gógóar í skáldsögunni 79 af stöðinni sem tálkvenndi. Birgitti heimsækir þáttinn og skýrir frá greiningunni.
    Haukur Þorgeirsson, málfræðingur, heldur áfram með sína vikulegu pistla um íslenska ljóðlist fyrri alda. Í dag segir hann frá refhvörfum og listrænni togstreitu í heimi síðustu hirðskáldanna.
    Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, veltir fyrir sér staðaranda og steinsteypu í pistli sínum og þeim úrelta hugsunarhætti að rífa byggingu eftir að notkun hennar er hætt.
    52 min
  • Terta í Elliðaárstöð, Þórdís Erla Zoega í Berg Contemporary
    Meðal verðlaunahafa á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 var þverfaglega hönnunarteymið Terta. Hópurinn endurhannaði Elliðaárstöð og umhverfi hennar fyrir Orkuveituna og úr varð eftirtektarverður áfangastaður, svæði sem var áður afvikið iðnaðarsvæði en iðar nú af lífi árið um kring. Við hittum tvo meðlimi Tertu, þær Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð og Evu Huld Friðriksdóttur, arkitekt í þætti dagsins.
    Við lítum við líka í Gallery Berg og ræðum við Þórdísi Erlu Zoega um sýningu hennar Domestic Sci-fi. Þar vinnur Þórdís meðal annars með þá tilfinningu að nútíminn sé löngu farinn fram úr þeirri framtíðarsýn sem við ólumst upp við. Hið heimilislega er orðið að vísindaskáldskap.
    54 min
  • Aldrei las ég Laxness / Vefarinn mikli frá Kasmír
    Bókaklúbbur Víðsjár heldur áfram: Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins. Í þættinum ræða Tómas og Natasha S., skáld og rithöfundur, bókina sín á milli.
    57 min
  • Bókumbók, artivismi og arkitektúr, Sæmundur Fróði/rýni
    Sigrún Perla Gísladóttir, arkitekt, vill hugsa um arkitektúr sem afl til umbreytinga í átt að meira réttlæti, vellíðan og sjálfbærni. Í tillögu hennar að verndun hafsvæða við landið dregur hún meðal annars fram með sjónrænum hætti neðanjarðarborgir og kórallahella sem eru tengdari okkur en við höldum. Perla mun kynna verkefnið á málþingi um Artivisma í Norræna húsinu á morgun og við ræðum við hana í þætti dagsins. Einnig kynnum við okkur Bókumbók, forvitnilega bókverkabúð og sýningarrými sem opnaði um miðjan febrúar dyr sínar við Njálsgötu 11. Katla Ársælsdóttir rýnir auk þess í óperuna Sæmund Fróða sem sýnd er í Tjarnarbíói.
    55 min
  • Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg, Lunga skólinn, Haukur Þorgeirs pistill #4
    Í Hafnarborg sýnir um þessar mundir pólska listamanna tvíeykið Austur-Íslendingar, en það skipa þau Weronika Balcerak og Lukas Bury. Titill sýningarinnar, Heiðvirðir einstaklingar, er sóttur í auglýsingu sem birtist í smáauglýsingablaði Tímans árið 1991, en sýningin hverfist um samskipti á milli Póllands og Íslands. Samskipti, sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Við ræðum við Lukas og Weroniku í þætti dagsins.
    Karólína Rós Ólafsdóttir segir frá listamannadvöl í Lunga lýðháskólanum á Seyðisfirði og Haukur Þorgeirsson fer með okkur inn í heim norrænna ljóða á 12.öld.
    51 min
  • Tilfinningar í forn-norrænum ritum, leikhúsupplifanir í Borgarnesi og Finnlandi
    „Þegar nánar er að gáð þá finnum við hvernig tilfinningarnar ólga undir yfirborðinu, þó enginn hafi kannski beint orð á þeim,“ segir Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við íslensku og menningardeild HÍ, en hún stendur, ásamt fleiri fræðimönnum, að nýlegu greinasafni sem hverfist um tilfinningar í forn-norrænum bókmenntum sem við fræðumst nánar um í þætti dagsins. Einnig segir Trausti Ólafsson frá sterkri leikhúsupplifun í Helsinki og Katla Ársælsdóttir rýnir í einleikinn Salka - ástin og dauðinn, sem sýndur er í Landnámssetrinu í Borgarnesi, í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
    53 min
  • Fuglar, eyjar og örnefni á Breiðafirði
    Þorvaldur Þór Björnsson hefur í rúma fjóra áratugi skrásett örnefni og fuglategundir við Breiðafjörð auk þess að teikna upp kort af eyjum og skerjum. Hann er í dag starfsmaður Náttúrufræðistofnunar en var það alls ekki þegar hann hófst handa við skráningarnar. Framan af var þetta stefnulaust áhugamál, sem hófst þegar hann taldi fuglategundir sem gutti á gúmmíbát við Reykjavík. Við tóku áralangar skráningar og teikningar, allt gert í hjáverkum einungis ánægjunnar vegna. Allt þar til Náttúrufræðistofnun sá hvaða gersemar Þorvaldur hafði undir höndum og var hann þá ráðinn í hlutastarf hjá stofnuninni. Við ræðum við Þorvald í þætti dagsins, en einnig heyrum við hluta úr gömlum viðtölum við Eystein Gíslason bónda í Skáleyjum.
    53 min
  • Gáttir Benedikt Hjartarson, Haukur Þorgeirs #3, Töfrafugl/ rýni
    Við munum heyra í Benedikti Hjartarsyni prófessor í almennri bókemenntafræði og meningarfærði við háskóla íslands, en hann gaf nýverið út bókina Gáttir, heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943. Í Gáttum hugar Benedikt að áhrifum heimsbókmenntanna á íslenskt menningarlíf á fullveldis árunum. Mikil áhersla var lögð á að byggja upp íslenska nútímamenningu og liður í því verkefni var að kynna nýjustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir íslensku lesendum.
    Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í ljóðabókina Söngur tímafuglsins og fleiri ljóð, eftir Ægi Þór Jähnke. En við hefjum þáttinn á því að hverfa aftur til 11.aldar með Hauki Þorgeirssyni.
    53 min
  • Fyrsti apríl
    Þáttur dagsins er tileinkaður aprílgabbinu. Rifjuð eru upp nokkur góð aprílgöbb, auk þess sem uppruni aprílgabbsins og skyldra hefða er kannaður.
    51 min
  • Ísmús vefurinn, draumaíbúðir arkitektanema og Jötungíma kveður/rýni
    Víðsjá leit við í Listaháskólanum og ræddi við nema á fyrsta ári um arkitektúr framtíðarinnar. Þau Gylfi Halldórsson og Urður Ýr Þorsteinsdóttir segjast finna fyrir mikilli ábyrgð verandi í þessu námi og að þau séu að mörgu leyti sammála gagnrýnni umræðu síðustu missera um arkitektúr, þó margt sé vel gert. „Við vitum að við getum gert þetta vel, en það þarf að vera vilji fyrir því að borga fyrir góðan og fallegan arkitektúr. Ef við gefum okkur aðeins lengri tíma í hönnunina þá fáum við góðan arkitektúr í staðinn.“
    Við kynnum okkur einnig Ísmús vefinn með yfirumsjónarmanni vefsins, þjóðfræðingnum og forritaranum Trausta Dagssyni. Og Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Jötungíma kveður sem leikhópurinn Díó sýnir í Elliðaárstöðinni.
    51 min