Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Barrokkbandið Brák, Haukur Þorgeirs #2, Spaðar
    Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er hér í Reykjavík, í þriðja sinn í ár, en þar leika íslenskir og erlendir hópar, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi, tónlist frá miðöldum, endurreisnartímanum, barokktímabilinu og rómantíska tímanum. Opnunartónleikarnir fara fram annað kvöld í Hörpu og eru í höndum Barrokkbandsins Brákar og í þættinum lítum við inn á æfingu hjá bandinu.
    Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, flytur í dag erindi um kvæðið Velleklu og hugarheim hirðskáldanna, og bendir á að dróttkvæði mætti líka kalla: óskiljanlega orðræðu í bergmálshelli hinnar menntuðu elítu.
    Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og tónlistarmaður, heimsækir einnig þáttinn og segir frá hljómsveitinni Spöðum sem hafa komið víða við á löngum ferli og munu stíga á stokk í Hilton Nordica í vikunni á Blúshátíð Reykjavíkur.
    56 min
  • Unnur Ösp á Leiklistardaginn, Dáland og Afbygging stóriðju í Helguvík
    Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikhöfundur flytur ávarp sitt í tilefni af alþjóðlega leiklistardeginum, sem haldinn er hátíðlegur á morgun, þann 27. mars. Við hugum líka að tónlist Purcell og samlanda hans, John Dowland og tónleikum þriggja tónlistarmanna undir yfirskriftinni Dáland, sem fara fram í Mengi annað kvöld
    Listamannateymið Libia & Ólafur Ólafsson opnuðu í febrúar 2024 sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík. Við rifjum uppfjöllun um sýningina, þar sem svar við spurningu listamannanna og samstarfsaðila þeirra er komið, niðurrif Kísilverksmiðjunnar er hafið.
    53 min
  • Bernd Ogrodnik / Svipmynd
    Bernd Ogrodnik er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hefur búið hér á landi frá árinu 1982. Hann heillaðist af veröld brúðuleikhússins á unga aldri og var snemma farinn að búa til sína eigin töfraheima. Hann ætlaði samt alltaf að verða tónlistarmaður og megnið af tímanum fór í að æfa sig á hljóðfæri, allt þar til að hann fékk nóg. Pressan í náminu og andrúmsloft eftirstríðsáranna í Þýskalandi þrengdu að og hann ákvað að leggja land undir fót. Við tóku nokkur ár af ferðalögum um heiminn og ýmiskonar lærdómur. Allt þar til hann endaði á Íslandi og ákvað að hann væri í raun brúðugerðamaður. Í dag er hann heimsþekktur brúðugerðamaður og margverðlaunaður fyrir sýningar sínar. Bernd trúir staðfastlega á umbreytingar og heilunarmátt listarinnar og þegar öll leikhús lokuðu í Covid ákvað hann að breiða boðskapinn út á annan hátt. Hann stofnaði brúðugerðaskólann Worlds of Puppets á netinu en það verkefni hefur óvænt sprungið út og tekur í dag nær allan hans tíma. Hann settist einnig niður á þessum tímamótum og skrifaði bók. Við heimsækjum Bernd í þætti dagsins.
    53 min
  • Tolli Morthens, Gallerí Port og hugvekja Freyju Þórsdóttur
    „Í mínu innra landslagi var tilfinningin svoldið eins og landslagið sem ég er að mála, svona slepptu, treystu og leyfðu þér að bráðna, leyfðu þér að vera eins og vorið á Hrafntinnuskeri,“ segir Tolli Morthens um yfirstandandi málverkasýningu í gallerí Þulu, sem hann kallar Fingraför árstíða. Verkin vann hann eftir göngu að Fjallabaki með góðum hópi fólks úr jaðarsettri stöðu, en Tolli segist hafa óbilandi trúa á hjálpræðinu sem felst í ástríðufullu sambandi við Móður Jörð. Meira af því í Víðsjá dagsins.
    Við lítum einnig inn í Gallerí Port sem fagnar 10 ára afmæli í vikunni og heldur upp á það með nýjum verkum og tilkynningu um breytta tíma í Porti. Og einnig heyrum við hugvekju frá Freyju Þórsdóttur um hugarró og dómhörku.
    54 min
  • Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs pistill #1
    Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningarinnar í verkum sýningarinnar. Grétar Þór Sigurðsson hittir Loga í Köben í þætti dagsins.
    Og í dag tekur til máls nýr pistlahöfundur, Haukur Þorgeirsson, en hann er málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun. Haukur mun á næstu vikum ferðast með okkur um forna ljóðlist og fara vítt og breitt um hugarheim miðalda. Í sínum fyrsta pistli segir Haukur okkur frá Ragnarsdrápu, elsta kvæðið sem varðveitt er í íslenskum handritum.
    Og við ræðum við Gunnlaug Bjarnason um hönnun á bókverkum HKL og vörumerkið Laxness.
    55 min
  • Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput
    Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var áður hluti af Áburðarverksmiðju ríkisins. Við lítum þar við í síðari hluta þáttar. Tumi Árnason fjallar um nýafstaðna tónleika Caput hópsins í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli Jóns Nordal. Og við komum við í Höggmyndagarðinum þar sem myndlistarkonan Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnason sýnir um þessar mundir skúlptúra sem hún kallar Tilfinningasteina, en þeir eru afsprengi rannsóknar hennar á tilfinningalegum orðaforða, sem hún segist ekki vera neitt sérstaklega góð í sjálf.
    52 min
  • Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer því að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.
    Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:
    https://www.facebook.com/groups/1247768283945537
    55 min
  • Dómur Finns Arnars, Ljóðamót á Akureyri og Mömmó/rýni
    Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í að mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þáttar, en hefjum leikinn fyrir norðan, þar sem Ljóðaklúbbur Akureyrar undirbýr Ljóðamót kvöldsins í fornbókabúðinni Svörtum bókum. Þá rýnir Katla Ársælsdóttir í leiksýninguna Mömmó, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.
    55 min
  • Áning Elínar Elísabetar í Þulu, The Wall, Gæðablóð / rýni
    Elín Elísabet Einarsdóttir hefur um árabil starfað sem teiknari en í Covid ákvað hún að nú væri komin tími á að gefa myndlistinni meira pláss. Og þegar hún fór að mála úti í náttúrunni var ekki aftur snúið. Líkt og æðarkollan sem sækir í sama hreiður kynslóð eftir kynslóð sækir Elín Elísabet í staði á landinu sem hún tengist fjölskylduböndum. Þar vappar hún um í kyrrð og einveru með fuglum og plöntum og upplifir staðinn, allt þar til ákveðin sjónarhorn byrja að færast yfir á strigann. Ferlið skapar ástand sem Elín Elísabet líkir við hálfgerðan trans. Við hittum listakonuna í gallerí Þulu á Hafnartorgi þar sem hún sýnir ný verk.
    Einnig rýnum við, að gefnu tilefni, í eitt lag af The Wall, plötu Pink Floyd og skoðum textatengsl þess við breska dægurlagatónlist á fjórða áratug síðustu aldar.
    Og Trausti Ólafsson rýnir í leikverkið Gæðablóð sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
    53 min
  • Mömmó í Borgó og myndlist á tímum kalda stríðsins
    Annað kvöld verður leikritið Mömmó frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Leikritið er eftir hinn rómaða leikhöfund Paulu Vogel, sem hefur óhikað tekið fyrir flókin félagsleg og pólitísk mál og sló í gegn hér á landi og víðar með leikriti sínu Ökutímar. Agnar Jón Egilsson leikstýrir verkinu og segir okkur nánar af sýningunni í fyrri hluta þáttar. Á morgun hefst líka hugvísindaþing Háskóla Íslands, þar sem því helsta úr fræðunum er miðlað í fyrirlestrum og málstofum. Ein af fjölmörgum áhugaverðum málstofum er sú sem setur fókus á bókmenntir og listir hér á landi á tímum kalda stríðsins, þegar orðræðan einkenndist oft af myndmáli sem skipaði heiminum í tvo andstæða póla. Heiða Björk Árnadóttir listfræðingur hefur undanfarið rannsakað hugmyndir um hlutverk myndlistarinnar í þessu samhengi og er gestur í síðari hluta þáttar.
    55 min