Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Harpa Rós Kristjánsdóttir, Dagur Hjartarson, Stórskáldið og geisladisk
    Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Hörpu Rún Kristjánsdóttur sem tók fyrr í vikunni við Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Eddu. Björn Þór Vilhjálmsson, einn af bókmenntagagnrýnendum Víðsjár, fjallar um skáldsöguna Við erum ekki morðingjar eftir Dag Hjartarson. María Kristjánsdóttir leikhúsrýnir fjallar um leikritið Stórskáldið eftir Björn Leó Brynjarsson sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu á föstudag. Og tónlistarkonan Berglind María Tómasdóttir heldur áfram að kanna geisladiskasafnið sitt og grisja, og sér nú fyrir endann á verkinu.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
    52 min
  • Ólöf Nordal, Guðmundur Steinsson, Guðrún Eva Mínervudóttir og Joni Mit
    Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Stefán Baldursson leikstjóra um höfundarverk Guðmundar Steinssonar leikskálds, en Leiklestrarfélagið stendur í samvinnu við Þjóðleikhúsið og Kristbjörgu Kjeld fyrir viðamikilli dagskrá um Guðmund og verk hans í Þjóðleikhúskjallaranum á næstu vikum. Þrjú verk Guðmundar verða leiklesin en verkefnið hefst með sérstakri dagskrá þar sem lífi og starfi hans verða gerð skil, á meðal þeirra sem fram koma þar er Sigurður Sigurjónsson leikari og hann verður gestur Víðsjár í dag. Sýningin Úngl, yfirlitssýning á verkum Ólafar Nordal, verður skoðuð í fylgd listamannsins, en sýningin var opnuð um síðustu helgi á Kjarvalsstöðum. Maríanna Clara Lúthersdóttir bókmenntagagnrýnandi fjallar um skáldsöguna Aðferðir til að lifa af eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Harpa Árnadóttir, Hildur Knútsdóttir, og Roc
    Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur var að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Svínshöfuð. Bergþóra er fædd árið 1985 en hefur nú þegar vakið töluverða athygli fyrir skrif sín, bók hennar, Flórída, frá árið 2017, var til dæmis tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna á sínum tíma. Bergþóra verður gestur Víðsjár í dag. 
     
    Hverfisgallerí við Hverfisgötu verður heimsótt og rætt við Hörpu Árnadóttur myndlistarkonu sem þar sýnir verk sín á sýningu sem hún kallar Djúpalogn.
    Bók vikunnar að þessu sinni er skáldsagan Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur, sem kom út í fyrra. Hlustendur heyra í höfundinum í þætti dagsins.  
     
    Og Snæbjörn Brynjarsson leikhúsrýnir fjallar í dag um leikverkið Rocky! eftir danska höfundinn Tue Biering, sem frumsýnt var í Tjarnarbíói  á föstudag, nýlegt ádeiluverk sem vakti töluverða athygli á síðasta ári fyrir að taka með frumlegum hætti á erfiðu málefni.
     
    Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
    54 min
  • Í beinni frá Listaháskóla Íslands
    Bein útsending frá Listaháskóla Íslands. Lestin og Víðsjá leiða saman hesta sína í dag og mæta í heimsókn í Listaháskóla Íslands í Laugarnesi. Tuttugu ár eru nú liðin síðan kennsla hófst í skólanum og því tímabært að spyrja hvernig til hafi tekist. Gestir ræða meðal annars um lífið í skólanum, listnám og eðli þess, háskólavæðingu listanna, líf eftir námið og áhrif skólans á menningarlífið í heild. Fylgst verður með kennslu í ýmsum listgreinum og sköpun nemenda sem einnig stíga á stokk. Meðal gesta verða stjórnendur, nemendur og kennarar við skólann.
    53 min
  • Joshua Bell, Endurminningar Valkyrju, þjóðsögur, Sjón og geisladiskar.
    Í þætti dagsins verður hringt í bandaríska fiðluleikarann Joshua Bell en hann heldur tónleika í Hörpu á sunnudag ásamt píanóleikaranum Alessio Bax. Joshua Bell er einn fremsti og þekktasti fiðluleikari samtímans en í viðtalinu segir hann frá samtali þeirra félagi, efnisskrá tónleikanna og hugmyndum sínum um samfélagslegt hlutverk sígildrar tónlistar.
    Hugað verður að alþjóðlegri ráðstefnu sem fram í Norræna húsinu á morgun og á föstudag í tilefni af því að þann 17. ágúst síðastliðinn voru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara. Gestur Víðsjár í dag verður Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar.
    Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um skáldsöguna Korngult hár, grá augu, eftir Sjón. Berglind María Tómasdóttir tónlistarkona heldur áfram að fara í gegnum geisladiskasafnið sitt. Og Snæbjörn Brynjarsson fjallar um drag-revíuna Endurminningar valkyrju eftir Ásgeir Helga Magnússon, Cameron Corbett, Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur og Sigurð H. Starr Guðjónsson, sem sýnd er í Tjarnarbíói.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
    53 min
  • Jóhann Sigurjónsson, Hefnd grasflatarinnar, Sex í sveit og Sara Riel
    Þess er minnst um þessar mundir að hundrað ár eru frá andláti Jóhanns Sigurjónssonar rithöfundar, en hann andaðist þann 31. ágúst árið 1919, aðeins 39 ára gamall. Jóhann var eitt fremsta leik- og ljóðskáld þjóðarinnar og haslaði sér völl á leiksviðum í Evrópu í upphafi síðustu aldar. Á undanförnum dögum hefur verið boðið upp á tvær dagskrár sem helgaðar hafa verið skáldskap Jóhanns, annars vegar í Borgarleikhúsinu um helgina og hins vegar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld. Að því tilefni verður í Víðsjá í dag rætt við þá Svein Einarsson leikstjóra og rithöfund og Svein Yngva Egilsson bókmenntafræðing, en báðir komu þeir fram í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld.
    Hlustendur heyra einnig af bók vikunnar sem að þessu sinni er Hefnd grasflatarinnar, smásagnasafn eftir bandaríska höfundinn Richard Brautigan í íslenskri þýðingu Þórðar Sævars Jónssonar. Rætt verður við Þórð Sævar og brot lesið úr bókinni.
    María Kristjánsdóttir fjallar í dag um gamanleikinn Sex í sveit sem frumsýndur var í Borgarleikhúsinu á dögunum og loks verður rætt við Söru Riel um nýtt risastór útilistaverk hennar sem heitir Flora og er við Austurbæjarskóla í Reykjavík. Verkið er unnið með þeim hætti að nemendur í skólanum voru beðnir um að svara spurningunni: ef þú værir planta, hvaða planta værir þú og af hverju?
    Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Nóbelsverðlaun, Snæbjörn, geisladiskar og Um tímann og vatnið
    Í Víðsjá í dag verður meðal annars sagt frá væntanlegum Nóbelsverðlaunahöfum í bókmenntum en tilkynnt var í Stokkhólmi í morgun að verðlaunin hlytu að þessu sinni pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk og austuríski rithöfundurinn Peter Handke. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi fjallar í dag um nýja bók Andra Snæs Magnasonar, Um tímann og vatnið. Rætt verður við Snæbjörn Arngrímsson, fyrrverandi bókaútgefanda, sem í morgun tók við Íslensku barnabókaverðlaununum í bókasafni Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Og Berglind María Tómasdóttir tónlistarmaður og dósent við Listaháskóla Íslands flytur fyrsta pistil af þremur þar sem hún fer í gegnum geisladiskasafnið sitt, og grisjar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson,
    53 min
  • Gjörningar, Sigurhæðir, Jóhanna K. Yngvadóttir og Sequences
    Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar segir frá gjörningalistahátíðinni A! sem hefst fyrir norðan á morgun og stendur fram á sunnudag. Fjölmargir listamenn koma fram á hátíðinni sem er samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og Menningarhússins Hofs.
    Ráðmenn á Akureyri hugleiða nú að selja Sigurhæðir, hús Matthíasar Jochumssonar skálds. Að því tilefni verður rætt við Pétur Ármannsson arkitekt um skáld og hús, norðan og sunnan heiða.
    Rætt verður við Ásdísi Ólafsdóttir listfræðing um myndlist Jóhönnu K. Yngvadóttur en yfirlitssýning á verkum hennar, Eintal, verður opnuð í Listasafni Íslands á laugardag.
    Nýjunda Sequences myndlistarhátíðin verður sett á föstudag í Marshall húsinu en hún fer fram þar og víðar í Reykjavík fram til 20. október. Sýningarstjórar hátíðarinnar, Hildigunnur Birgisdóttir og Ingólfur Arnarson, verða tekin tali í Víðsjá dagsins.
    Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson.
    55 min