Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós
    Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki.
    Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sínum.
    Þá leggur Halldór Guðmundsson rithöfundur línurnar fyrir bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness sem heldur áfram á miðvikudag. Halldór segir frá högum Halldórs á 4. áratug síðustu aldar þegar hann er að skrifa sín stærstu verk og forvitnast er um aðdraganda skáldsögunnar Heimsljóss sem verður á dagskrá bókaklúbbsins í Víðsjá á morgun.
    53 min
  • Open og sýningarstjórnun
    Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna.
    Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu möguleika sem leynast í starfinu.
    1 hr
  • Robert le Diable og Breadcrumbs
    Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer. Egill Arnarsson, ritstjóri, mun fjalla um óperuna í þltti dagsins og setja í samhengi við hina svokölluðu risaóperu (grand opéra) en það óperuform stóð í mestum blóma um 1830 til 1850.
    Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, segir frá upplifun sinni af verkinu Breadcrumbs eftir Jennifer Haley í leikstjórn Juliette Louste. En verkið er sýnt í Tjarnabíói um þessar mundir.
    51 min
  • Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið.
    Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld fagnaði fimmtusgafmæli fyrir helgi. Alls ekki af því tilefni blés hann til tónleika í Fríkirkjunni síðasta sunnudag en Guðrún Sóley heimsótti hann á æfingu fyrir tónleikana sem hitti einmitt beint á afmælisdaginn.
    Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, lítur við í hljóðstöfu og ræðir við okkur um Heimsljós og Töfrafjallið. En hún mun halda fyrirlestur um aðalpersónur þessara bóka, þá Ólaf Kárason og Hans Castorp, á Gljúfrasteini á sunnudag þar sem hún vegur og metur þræðina sem tengja þá saman.
    52 min
  • Led Zeppelin, íslenska og gríska.
    Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að setja okkur inn í hugarheim fólksins sem sótti tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma.
    Haukur Þorgeirsson segir frá tengslum íslensku og grísku og leiðir okkur svo inn í Trójustríðið en þegar allt virtist glatað fengu íbúar Tróju liðsauka frá Amasónum sem blésu tróverskum konum baráttuanda í brjóst.
    54 min
  • Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti
    Í fyrra sendi hlaðvarparinn frægi Jad Abumrad, sem þekktur er fyrir Radiolab og Dolly Partons America, frá sér nýja hlaðvarpsseríu um tónlistarmanninn Fela Kuti og arleifð hans. En við munum kynna okkur tónlistarmanninn að gefnu tilefni í þættinum.
    Nýverið kom út bókin The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800 (í. Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum síðari alda um 1.500 - 1800) hjá forlaginu De Gruyter. Í bókinni er sjónum beint að samspili milli trúarlegra og veraldlegra þátta í handritum og prentuðum bókmenntum. Við ræðum við ritstjóra bókarinnar þær Margréti Eggertsdóttur, Katelin Marit Parsons og Aðalheiði Guðmundsdóttur.
    55 min
  • Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian
    Leikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún varði nýverið doktorsverkefni sitt sem bar titilinn Lifandi texti - áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Við ræðum við Tunni í þættinum.
    Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, segir frá nýútkominni þýðingu Gyrðis Elíassonar á bókinni Veiðistöng handa afa mínum, eftir kínversk nóbelskáldið Gao Xingjian.
    Davíð Þór Jónsson, tónlistarmaður, rekur hlutverk sitt sem Ólafur Kárason Ljósvíkingur í listaverki Ragnars Kjartanssonar, listamanns, World Light sem hann vann upp úr Heimsljósi Halldórs Laxness.
    Og af tilefni Eiríksþings rifjum við upp einn af pistlum Eiríks Guðmundssonar heitins um opnun H&M á Íslandi, frá árinu 2017.
    56 min
  • Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis
    Sigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur til tónleika honum til heiðurs nú á sunnudag þar sem leikin verða lög af tveimur merkilegum stórsveitaplötum sem Miles sendi frá sér á 6. áratugnum.
    Tumi Árnason flytur stutta samantekt á Jazzhátíð Reykjavíkur og dregur saman það sem stóð upp úr, sem og bendir á það sem betur mætti fara.
    Við rifjum upp eina af ótal mörgum Miles-Davis-flökkusögum sem við gerðum skil í Víðsjá laust eftir að píanóleikarinn Herbie Hancock hlaut Pólar tónlistarverðalunin mikilsvirtu.
    51 min