Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Víðsjá þrítug
    Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
    52 min
  • Ísmús, Síðasta sumar Klingsors og Fuglamál
    Þjóðfræðingurinn Júlíana Þóra Magnúsdóttir átti heima í nokkur ár í kjallara Árnastofnunar þar sem hún hlustaði á dýrmætar upptökur úr forneskjunni, skráetti og flokkaði. Sagnahefðir kvenna sem enduróma sögur torbæjanna hafa löngum heillað hana og í doktorsrannsókn sinni greindi hún sagnir 200 kvenna sem Hallfreður Örn Eiríksson safnaði og varðveittar eru í Árnastofnun. Júlíana Þóra verður gestur okkar i dag, en hun er ein þeirra sem mun taka til máls á málþingi í Eddu næstkomandi laugardag í tilefni 25 ára afmælis Ísmús vefsins, þar sem þessar og miklu fleiri upptökur er að finna.
    En þetta er mikil afmælisvika, það er ekki bara Ísmús vefurinn sem fagnar 25 ára afmæli, og svo Sjónvarpið 60 ára afmæli, heldur fagnar þessi þáttur, Víðsjáin, 30 ára afmæli á morgun. Af því tilefni ætlum við að fara í smá naflaskoðun í þætti morgundagsins en tökum kannski forskot á sæluna í þessum þætti í tengslum við fyrr nefndan vef Ísmús.
    Gauti Kristmanns rýnir í glænýja þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar á Síðasta sumri Klingsors eftir þýska rithöfundinn Hermann Hesse. Síðan mun Sölvi Halldórsson rýna í skáldsögu sem kom út í vor; Fuglamál eftir Mörtu Maríu Jónsdóttur.
    54 min
  • Netárásir, Svikasögur, Pollar
    Netárásir hafa verið áberandi í íslenskum bókmenntaheimi undanfarnar vikur. Undanfarna daga hafa átt sér stað árásir á bókmenntavefsíðurnar Lestrarklefann, norðdahl.org og Starafugl. Við mælum okkur mót við umsjónarmenn Lestrarklefans sem og Eirík Örn Norðdahl og ræðum þessar árásir.
    Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Svikasögur eftir Maríu Reyndal sem frumsýnt var í síðustu viku í Borgarleikhúsinu.
    Elísabet Brynhildardóttir segir frá Pollum, nýju útilistaverki sínu sem prýðir almenningsgarð á gamla strætóreitnum í Borgartúni.
    56 min
  • Haustbækur, Bríet Bjarnhéðins, Ástin ein taugahrúga
    Á sunnudag verður haldið verður upp á afmæli Bríetar Bjanhéðisdóttur, sem fæddist á þessum degi fyrir 170 árum. Það er félagið Leikhúslistakonur 50+ sem hafa gert dagskrá af þessu tilefni, sem kallast - Bríet, blómin og Hannes. Edda Þórarinsdóttir leikkona og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur segja frá í þætti dagsins.
    Við heyrum rýni Trausta Ólafssonar á kammeróperunni „Ástin ein taugahrúga: enginn dans við ufsaklett“ og fáum meðmæli með góðum haustbókum.
    51 min
  • Aldrei las ég Laxness / Heimsljós II
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Í síðustu viku komumst við aðeins hálfa leið með stórvirkið Heimsljós sem fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö: Hús skáldsins og Fegurð himinsins.
    Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið.
    Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
    54 min
  • Pétur Ben, Sanskrít, Inga Lísa Middleton
    Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí Loftskeytastöðinni kallast Hafið á öld mannsins, og hefur að geyma verk sem nú þegar hafa ferðast víða um heim. Víðsjá hitti Ingu Lísu við verkin og spurði út í vinnuferlið og innblásturinn, en við sögu koma þýskur efnafræðingur og breskir fagurkerar frá viktoríutímanum.
    Pétur Ben, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og ræðir lífið og listina, plötuna Painted Blue og komandi tónleika í Hljómahöllinni.
    Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni heyrum við af tengslum íslensku og sanskrít og hinum heilaga drykk sem ránfuglinn færði guðunum.
    54 min
  • Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan
    Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn sem virkan þátttakanda í sýningunni. Víðsjá ræðir við Daníel Ágúst Ágústsson, einn þeirra listamanna sem eru með verk á sýningunni.
    Sjöfn Hauksdóttir rýnir í leikverkið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson sem sýnt er í Kassanum um þessar mundir.
    Og við hugum að góðvini jafnt sem óvini þáttar Bob Dylan.
    51 min
  • Vaka og Varkár
    Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um þrána eftir því að eignast barn og þá miklu óvissu og ókyrrð sem fylgir því að missa fóstur. Margrét mun heimsækja okkur í hljóðstofu í síðari hluta þáttar og segja frá bókinni.
    Fyrst förum við uppeftir í Kópavog þar sem Þjóðlistahátíðin Vaka stendur yfir. Á morgun heldur þjóðlagahópurinn Umbra tónleika ásamt þremur norskum tónlistaramönnum, Ingrid Lingaas Fossen, Vegar Vårdal og Vegard Hansen. Víðsjá hitti nokkra úr því fríða föruneyti og fékk innsýn í heim norska hljóðfærisins langeleik.
    55 min
  • Aldrei las ég Laxness / Heimsljós
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig.
    Gestur Aldrei las ég Laxness er Bára Gísladóttir, tónskáld sem búsett er í Kaupinhavn. Við tengjumst landa á milli með hjálp nútímatækni og vísinda og ræðum verkið í bærilega góðu hljóði. Hins vegar verður aðeins fjallað um helming verksins í þættinum. Viðsjá mun því ljúka yfirferð á Heimsljósi næsta miðvikudag.
    Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið
    Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
    56 min