Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Guðjón Ketilsson, Högni Egilsson og Straumur
    Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki. Við hittum Guðjón í Ásmundarsal í þætti dagsins.
    Stórverkið ANOK eftir Högna Egilsson verður frumflutt í Hallgrímskirkju á föstudaginn. Verkið er samið fyrir kór, orgel og slagverk og sækir innblástur í apókrýf rit frumkristni, meðal annars textann Þrumuna: Fullkomnum hug og Tómasarguðspjall. Högni verður gestur okkar í hljóðstofu.
    Íslenski dansflokkurinn frumsýndi síðastliðinn föstudag verkið Straum, sem samanstendur af fjórum verkum eftir ólíka höfunda. Trausti Ólafsson rýnir í flutninginn.
    53 min
  • Dauðadæmd, Natasha S., Varkár/rýni
    „Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvast og höfuðið sett á stjaka. „Þegar ég opnaði dómabækurnar og dró upp allan þennan vitnisburð og mynd af sveitinni, þá varð þetta bara svo mögnuð saga, og þetta var svo magnað óréttlæti.“ Guðný verður gestur okkar í Víðsjá dagsins.
    Og við heyrum fleiri kvennasögur því Natasha S. fjallar um þungbæra reynslu sína af heilbrigðiskerfinu hér á landi. Það var ekki fyrr en hún ferðaðist aftur til landsins sem hún flúði, Rússlands, sem á hana var hlustað og áralangir verkir hurfu. Og að lokum fjallar Gréta Sigríður Einarsdóttir um fyrstu skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Varkár, sem byggir á reynslu höfundar af sárri þrá eftir barni.
    55 min
  • Gerður Kristný, Páll Ragnar og Tui Hirv og Púðlusafnið
    Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem inniheldur blöndu af eistneskum, íslenskum, skandinavískum og enskum þjóðlögum, kom út á dögunum og Páll og Tui mættu í hljóðstofu til að segja frá samstarfinu, ferlinu og hvernig rætur þeirra úr pönki og kórastarfi birtast í tónlistinni.
    "Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi." Stendur aftan á skáldsögunni Míkadó sem rithöfundurinn Gerður Kristný var að senda frá sér en í verkinu fáum við að kynnast fjölskyldu á erfiðum tímamótum í gegnum sjónarhorn 11 ára stúlku. Gerður Kristný kemur í hljóðstofu og segir frá bókinni.
    Púðlusafnið er nýtt sviðsverk sem sýnt er á fjölum Tjarnarbíós. Verkið er samið og flutt af systrunum Olgu Sonju og Salóme Sól, og er það innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder. Sjöfn Asare gerði sér ferð á Púðlusafnið og segir frá í þættinum.
    52 min
  • Loftur Guðmundsson í Bíóteki, Þunnt skæni á logandi vök, Veisla þrjú/rýni
    Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár og er samin í samtali við Magneu en ljóð hennar fjallar um eldinn í iðrum jarðar en einnig eldinn umhverfis okkur, tortýmingaraflið sem fylgir honum en einnig sköpunarkraftinn. Við heyrum í þeim Hildigunni og Magneu í þætti dagsins.
    Við kynnum okkur einnig einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndagerðar, Loft Guðmundsson, með Gunnar Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi hjá Kvikmyndasafni Íslands, en verk Lofts verða sýnd í Bíótekinu í Bíó Paradís um helgina. Og Sölvi Halldórssson rýnir í nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, Veislu þrjú.
    53 min
  • Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan II
    Í Víðsjá dagsins klárum við yfirferð okkar á Íslandsklukkunni í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness. En í síðustu viku hófum við yfirferðina með leikkonunni og skemmtikraftinum Söndru Barilli. Íslandsklukkan kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar.
    55 min
  • Kristín Ómarsdóttir, hinÓperan 27, Bíddu bara þetta reddast/rýni
    „Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég ætti heima í óperuheiminum sem hinsegin söngkona,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir söngkona og framleiðandi hjá hinÓpera, nýs óperukompanís sem hefur það að markmiði að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið eins og það er. Hópurinn frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu á föstudag en hún segir ástarsögu eins frægasta bóhemapars 20. aldarinnar: Gertrude Stein og Alice B Toklas. Íris Björk, Herdís Anna Jónasdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir eru gestir Víðsjár í dag, þar sem þær segja frá verkinu og syngja einn ástardúett.
    Einnig verður rætt við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Lausnargjaldið og Sjöfn Asare rýnir í sýninguna Bíddu bara; þetta reddast sem sýnd er í Bæjarbíói.
    52 min
  • Hrund Atla á Mokka, persnesk mál, Atómstöðin, Högg
    Á sýningunni Allt í klessu á Mokka, sýnir Hrund Atla 28 verk unnin með olíupastel litum á flauelispappír. Hrund hefur lengi starfað á mörkum myndlistar og kvikmyndagerðar en eftir að hafa unnið lengi framan við tölvuna segist hún finna frelsi í því að leggja aðeins tækninni og sofa ein í tjaldi uppi á hálendi með skissubók. Við mælum okkur mót við Hrund yfir kaffibolla á Mokka.
    Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur, heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni skoðar hann persnesk tungumál en á ferðalagi sínu mun hann einnig gaumgæfa boðskap Saraþústra spámanns.
    Næsta skáldsaga í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness verður hin umdeilda Atómstöð. Við gröfum upp gamlan hugleiðingarpistil Margrétar Björnsdóttur frá Neistastöðumum um Atómstöðina í þættinum.
    Karl Ágúst Þorbergsson, leikhúsrýnir, segir frá sýningunni Högg eftir James Graham sem sýnd er um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu.
    58 min
  • Úkraínskir íkonar, nýjar plötuútgáfur, Undir sömu stjörnu/rýni
    Listasafn Íslands opnaði um liðna helgi sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar gefur að líta fjölda íkona frá 12 og fram á 19 öld, úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins. Við heyrum í Ingibjörgu Jóhannsdóttur safnstjóra í þætti dagsins
    Nýstofnuð þjóðarópera hóf formlega göngu sína á dögunum í Hofi á Akureyri og heldur tónlega víðsvegar um landið á næstu vikum. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir Víðsjár var staddur fyrir norðan um liðna helgi og mætti á þennan merkisviðburð
    Það er heilmikil vinna sem fellst í því að vekja athygli á sér sem tónlistarmaður í umhverfi sem gerir miklar kröfur til markaðs og kynningarmála, þar sem pönkarar jafnt og popparar þurfa að tileinka sér tungumál viðskiptaheimsins. Hugsjónin er ávallt drifkraftur tónlistarútgáfu en það getur verið gagnlegt að hafa ákveðinn merkimiða - eða label – sem sameinar stefnur, hópa, eða tíðaranda. Tvær nýjar plötuútgáfur skutu upp kollinum í sumar, plata og blaðran. Víðsjá kynnir sér starfsemi þeirra í þættinum.
    55 min
  • Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan I
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Íslandsklukkan sem kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar. Gestur Aldrei las ég Laxness að þessu sinni er Sandra Barilli, leikkona og skemmtikraftur.
    Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
    57 min
  • Karólína Rós um Lífskán, Brotnar línur/rýni, Djöflar/rýni
    Lífskán nefnist ljóðsaga úr smiðju Karólínu Rósar Ólafsdóttur en hún fjallar um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Sjúkdómsgreind kona, kaldur læknir og hömlulaus þýðandi eiga þar stórleik þar sem þau reyna að greiða úr þéttum vef tungumála og tákna mismunandi kerfa. Karólína verður gestur okkar í þætti dagsins.
    Sölvi Halldórsson rýnir í Brotnar línur eftir Védísi Evu Guðmundsdóttur.
    Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Djöfla eftir Lars Norén í Borgarleikhúsinu.
    52 min