Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Kristinn E. Hrafnsson og tíminn, Sif Ríkarðsdóttir og tilfinningar
    Í Víðsjá dagsins: samtal um myndlist og tímann og tilfinningar í Íslendingasögum.
    Í Hverfisgalleríi var opnuð á laugardag sýningin allt er nálægt þar sem finna má ný og nýleg verk eftir Kristinn Hrafnsson. Verkin hafa öll með sjálfan tímann að gera, hvernig hann streymir áfram á sínum skrykkjótta hraða, hvaðan hann kemur og hvert hann fer.
    Við hittum myndlistarmanninn í galleríinu.
    Við veltum líka fyrir okkur tilfinningum í Íslendingasögum, að gefnu tilefni. Að springa af stríði: Sorg og sársauki í Íslendingasögunum er yfirskrift erindis sem Sif Ríkharðsdóttir prófessor í almennri bókmenntafræði flytur í Neskirkju á morgun - þar fjallar hún um tilfinningar í þessum sagnaarfi Íslendinga og beinir sjónum sínum sérstaklega að birtingarmynd sorgar og sársauka. Þetta hefur verið rannsóknarefni hennar ásamt fleirum af fræðasviðinu, tilfinningarannsóknir á miðaldatextum þar sem tilfinningar eru skoðaðar í sögulegu samhengi.
    Umsjón með Víðsjá hafa Jóhannes Ólafsson og Guðni Tómasson.
    Ath. Rangt var farið með nafn Kristins í þættinum og beðiðst er velvirðingar á því.
    Tónlist:
    Tom Waits - Time.
    55 min
  • Biðin eftir Godot, köttur mús og greind, og tónlistarlegt samhengi
    Sveinn Einarsson, leikstjóri, rithöfundur og fyrrverandi leikhússtjóri, var einn þeirra heppnu sem fengu að upplifa umbyltingu leikhússins í París um miðja síðustu öld. Leikhús fáránleikans hitti hann beint í hjartastað og verk Samuel Beckets gáfu hans kynslóð rödd sem enn talar til okkar. Á sunnudag flytur Leiklestrarfélagið Beðið eftir Godot í Borgarleikhúsinu og það er Sveinn sem stýrir þar einvala liði leikara. Sveinn verður gestur okkar í þætti dagsins, segir okkur frá uppákomu Leiklestrarfélagsins og reyndar frá ýmsu fleiru, árunum í París og leikhúsástríðunni sem er hvergi nærri farin að kulna.
    Og svo fáum við heimspekivangaveltur frá Freyju Þórsdóttur, sem í dag fjallar um tilhneigingu mannsins til að gleyma því sem skiptir hann mestu. Og skoðar í því samhengi ólík hlutverk greindar og visku. Við sögu kemur líka Kafka, köttur og mús.
    En við hefjum þáttinn á því að tengja aðeins, erlenda tónlist sem bar á góma hér í þættinum fyrr í vikunni við íslenska. Magnús Kjartansson tónlistarmaður segir frá því þegar hann fór í hljóðver á áttunda áratugnum í London og Sandy Denny og Linda Thompson sungu fyrir hann bakraddir.
    55 min
  • Til hamingju með að vera mannleg, Come closer
    Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía, er danshöfundur og dansari sem hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum frá því hún útskrifaðist sem dansari frá Listaháskóla Íslands 2009. Hún frumsýnir nýtt leikverk í Þjóðleikhúsinu þann 19.apríl, verkið kallast Til hamingju með að vera mannleg og er unnið upp úr samnefndri ljóðabók. Bókina skrifaði Sigga Soffía þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð, sem leið til að takast á við óttann sem fylgdi óvissunni. Hún segir bókina meðal annars vera vitnisburð manneskju sem tekst á við áfall, sjálfstætt starfandi móður sem þarf að horfast í augu við nýja sjálfsmynd í kapítalísku samfélagi þar sem framleiðni virðist oft skipta meira máli en manneskjur. Við ræðum við Siggu Soffíu í þætti dagsins og heyrum nokkur ljóð úr bókinni Til hamingju með að vera mannleg.
    Einnig verður rætt við Borgar Magnason kontrabassaleikara um nýútkomna sólóplötu hans, Come closer.
    55 min
  • Kriðpleir í svipmynd og Djöfulsins snillingur
    Sjálfsalinn heitir nýtt útvarpsleikverk leikhópsins Kriðpleirs sem frumflutt verður um páskana. Kriðpleir er skipaður þeim Ragnari Ísleifi Bragasyni, Friðgeiri Einarssyni, Árna Vilhjálmssyni og Bjarna Jónssyni og þeir vita vel að tilveran er full af reddingum og misvel borguðum giggum. Í Sjálfsalanum hefur Ragnar ráðið sig í fast starf og sagt skilið við félaga sína í harkinu, þá Friðgeir og Árna. En tálsýnir lausamennskunnar lifa og fyrr en varir stefnir hugurinn í eina átt: Beint í næsta gigg. Ragnar Ísleifur og Friðgeir eru gestir Víðsjár í svipmynd og ræða páskapopp, kvikmyndina Bodyguard, sálfræði leikhússins og margt fleira.
    En við hefjum þáttinn á sviðslistarrýni frá Nínu Hjálmarsdóttur sem fór að sjá verkið Djöfulsins snillingur sem sýnt er í Tjarnarbíó.
    55 min
  • Stabat Mater, Glataðir snillingar, Óræð myndlist
    Við ræðum við Hallveigu Rúnarsdóttur sópransöngkonu í þætti dagsins, um eitt dáðasta tónverk barrokktímans, Stabat Mater eftir Pergolesi, sem samið var við einn þekktasta sálm kristninnnar. Hallveig mun flytja verkið ásamt Hildigunni Einarsdóttur og Kammersveit Reykjavíkur á Skírdag í Hallgrímskirkju.
    Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, verður viðkomustaður okkar í þætti dagsins. Í Sverrissal, einum sýningarsalanna þar, er nú uppi sýningin Ritaðar myndir þar sem gefur að líta nokkuð dularfullar myndir Jóhanns S. Vilhjálmssonar. Þetta eru gríðarflóknar tekningar, form og órætt letur, sem minna jafnt á norrænan myndheim og skreytilist fjarlægra landa. Við hittum Jóhann í dag og ræðum líka við Jón Proppé um listhans, en Jón er sýningarstjóri ásamt Erlingi Klingenberg.
    Og í dag kynnum við til leiks nýjan pistlahöfund hér í Víðsjá. Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon mun á næstu vikum flytja okkur pistla um Glatað snillinga. Í dag fáum við að heyra um einn helsta frumkvöðul kántrí- og þjóðlagarokktónlistar, Gene Clark.
    55 min
  • Arfur og umhverfi, Svikull silfurljómi, Sakamoto
    Á laugardaginn opnaði sýning myndlistarkonunnar Unu Bjargar Magnúsdóttur í samkomuhúsinu á Súðavík. Una Björg er fjórði listamaðurinn sem velst til þátttöku í sýningarröð Listasafns ASÍ þar sem skipulagðar eru einkasýningar valinna listamanna á tveimur stöðum á landinu. Víðsjá sendir útsendara af stað og lítur inn í samkomuhúsið á Súðavík og fær að heyra af sýningunni Svikull silfurljómi frá listakonunni sjálfri, en einnig verður rætt við Elísabetu Gunnarsdóttur safnstjóra listasafns ASÍ.
    Við heyrum einnig af norskri bók, Arfur og umhverfi eftir Vigdis Hjorht, sem nýverið kom út í íslenskri þýðingu Ísaks Harðarsonar. Hjorth er einn fremsti samtímahöfundur Noregs og er Arfur og umhverfi, hennar þekktasta verk. Bókin fjallar um fjölskyldu sem stendur í deilum vegna arfs sem á að skipta milli fjögurra uppkominna systkina. Þegar líður á söguna kemur í ljós aðmeira liggur undir en arfurinn, óuppgert fjölskylduleyndamál sem hefur verið þaggað í hel. Við ræðum við Silje Beite, þýðanda, um Arf og umhverfi.
    En við hefjum þáttinn á að minnast merks japansks tónlistarmanns sem féll frá um liðna helgi, Ryuichi Sakamoto.
    54 min
  • Djöfulsins snillingur, Listbókamessa, Óbragð
    Reykjavík Art Book Fair / Listbókamessa eða Bókverkamessa fer fram um helgina í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þetta er í annað sinn sem listbókamessan fer fram hér á landi en sambærilegar messur eru haldnar um allan heim. Þar koma saman listamenn og hönnuðir sem nota bókverkið sem listform, lítil listbókaforlög, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni af öllum toga, allt frá ljóða- og listaverkabókum yfir í hönnunargripi. Við skreppum í Hafnarhúsið hér á eftir.
    Alþjóðlegi leikhópurinn Reykjavík Ensemble hefur vakið verðskuldaða athygli frá því að hann var stofnaður árið 2019. Reykja­víkur­borg út­nefndi leikhópinn List­hóp Reykja­víkur 2020 og ný­verið gerði borgin við þau þriggja ára sam­starfs­samning. Hópurinn frumsýnir í kvöld sitt fjórða verk frá stofnun, verk sem kallast Djöfulsins snillingur, en verkið er svört kómedía sem fjallar um árekstra milli sjálfsmyndar listamanns og raunveruleika innflytjanda. Við ræðum við stofendur leikhópsins og höfunda verksins, þær Ewu Marcinek and Pálínu Jónsdóttur.
    Óbragð eftir Guðrúnu Brjánsdóttur kom út hjá Forlaginu á dögunum. Óbragð er fyrsta skáldsaga höfundarins, en hún vann samkeppni Forlagsins, Nýjar raddir 2020, með nóvellunni Sjálfstýringu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Óbragð.
    55 min
  • Svipmynd af listamanni: Melanie Ubaldo
    Melanie Ubaldo fæddist árið 1992 á Filippseyjum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022, hefur tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis og eru verk hennar í eigu helstu safna landsins. Melanie hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn 2021 og hún hlaut, ásamt félögum sínum í listamannaþríeykinu Lucky 3, Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna í fyrra.
    Verk Melanie eru oftast sjálfsævisöguleg og varpa ljósi á heim Íslendinga af erlendum uppruna, á fordóma, misrétti og hatursorðræðu. En einnig kvennamenningu, uppeldi, tengsl, heimili og minningar. Hún notast við fjölbreytta miðla og verkin hennar eru oft stór í sniðum, hún hefur mikið notast við textíl, samansaumuð málverk, texta og arkitektónískar innsetningar. Melanie er pólitísk og beitt í verkum sínum en á sama tíma eru verkin fíngerð og oftar en ekki fögur á að líta, sem er kannski ekki tilviljun því Melanie segir starf listamannsins felast í því að fegra heiminn. Melanie Ubaldo er gestur Víðsjár í Svipmynd dagsins.
    53 min