Benedikt Lafleur er talnaspekingur sem gefið hefur út bókina Reiknaðu þig út! Við fengum hann til að fræða okkur um talnaspeki og til að greina nýja árið út frá talnaspeki, hann mun einnig rýna í stjórnmálin út frá sömu speki.
Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Sólrúnu Jónsdóttur í Staðarkirkju í Staðardal og fékk að vita ýmislegt um kirkjuna. Nafn Sigríðar Björnsdóttur er nátengt Staðarkirkju og hún lagði ekki aðeins sitt af mörkum við endurbyggingur kirkjunna, Sigríður gaf líka út disk með íslenskum sönglögum þegar hún var komin yfir áttrætt.
Ef eldri borgarar vilja vera í sjálfstæðri búsetu lengur og seinka dvöl sinni á dvalar og hjúkrunarheimili þá verður regluleg hreyfing og styrktarþjálfun að vera stór hluti af þeirra lífi. Þetta segir Janus Guðlaugsson íþróttafræðingur sem rannsakaði í doktorsverkefni sínu áhrif hreyfingar hjá eldra fólki á aldrinum 70-90 ára. Við rifjum upp viðtal Helgu Arnardóttur við Janus sem hún tók á Heilsuvaktinni, fyrir u.þ.b. ári.
Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson