
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur þáttarins er Númi Snær Katrínarson. Númi er menntaður einkaþjálfari og nuddari ásamt því að vera fyrrum keppnismaður í CrossFit og sundi. Númi hefur stofnað og rekið crossfit stöðvar hérlendis og erlendis og er í dag einn eiganda CrossFit stöðvarinnar Grandi 101. Númi hefur síðustu ár skipt um fókus og fært sig meira frá CrossFit heiminum yfir í öðruvísi nálgun á hreyfingu og heildræna heilsu. Hann hefur þá stofnað fyrirtækið "Movement Lab" ásamt þjálfaranum Wayne Paul.
www.movelab.is
Skráðu þig í áskrift til að hlusta á þáttinn í heild og fá aðgengi að öllum þáttum 360 Heilsu. www.patreon.com/360heilsa
Gestur þáttarins er handboltakappinn Björgvin Páll Gústavsson. Björgvin hefur síðastliðin ár notað ákveðnar öndunaræfingar til að vinna á sínum kvíða, ná betri árangri í handboltanum og upplifa betri vellíðan og heilsu. Í þættinum ræðum við hans vegferð og förum yfir allskyns öndunaræfingar sem fólk getur gert til að bæta þol og afköst í æfingum, vinna á kvíða, auka orku og vellíðan, bæta svefn og margt fleira. Framhald af áskriftarþætti #9. Mouthtaping 101
---- Skráðu þig í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu til að hlusta á alla þætti í heild: www.patreon.com/360heilsa
Gestir þáttarins í dag eru þau Hildur Leonardsdóttir og Aron Skúlason. Þau eru par, búsett á Akureyri og halda uppi ansi áhugaverðum instagram reikning sem heitir "Frá toppi til táar". Þar fjalla þau um allskyns verðug heilsumálefni og birta reglulega skemmtilega og áhugaverða fræðslupósta um ýmsa hluti sem tengjast heilsu, umhverfinu o.fl.
Ég mæli hiklaust með að fylgja þeim á instagram undir nafninu "Frá toppi til táar"
Í þessum þætti ræði ég ákveðið málefni sem ég tel hafa fengið of aðeins of litla athygli. Þá sérstaklega hjá þeim sem stunda reglulega þjálfun og hreyfingu.
Þetta eru sölt og steinefni.
Í þættinum ætla ég að fara yfir hvað þetta er nákvæmlega, afhverju þetta ætti að skipta þig máli, hvort þú ættir að auka inntöku eða minnka inntöku á þessum efnum, hvernig þá og af hverju. Sömuleiðis fer ég yfir af hverju ég er ósammála hefðbundnum ráðleggingum um að við ættum að lágmarka saltneyslu fyrir bætta heilsu.
Föstur hafa lengi verið talin allrameina bót. Á síðustu árum hafa allskyns mismunandi föstur eins og 16:8, 5:2 og fleiri vaxið gríðarlega í vinsældum. Föstur eru taldar bæði stuðla að bættri heilsu og hjálpa fólki að losna við aukakílóin og komast í betra form. Föstur hafa þó sína "skuggahlið". Hlutir sem fáir tala um en eru gríðarlega mikilvægir þegar kemur að ákvörðuninni um hver eigi að fasta yfir höfuð og hver ekki, hversu lengi og hvenær. Í þessum þætti varpa ég ljósi á þær skuggahliðar fasta sem enginn talar um.
Frá því ég byrjaði að þjálfa fólk fyrir að verða 10 árum síðan hef ég uppgötvað ákveðið mynstur sem virðist sameiginlegt milli allra þeirra sem eiga erfitt með að koma sér í form og viðhalda því til lengri tíma.
Í þessum þætti uppljóstra ég þessu mynstri ásamt nokkrum conceptum sem munu gera þér kleift að léttast og komast í betra form svo gott sem áreynslulaust.
From the publisher's feed

5 Listeners

90 Listeners

72 Listeners

27 Listeners

32 Listeners

13 Listeners

9 Listeners