Við fengum í heimsókn Arngrím Hermannsson, en hann hefur ritað bókina Björgunarsveitin mín í tilefni af 70 ára afmæli Flugbjörgunarsveitarinnar. Arngrímur safnaði saman áhugaverðum frásögnum frá fjölmörgum félögum, en í bókinni eru hvoru tveggja leitar- og björgunarsögur og ferðasögur félaga Flugbjörgunarsveitarinnar. Við fengum Arngrím til að segja okkur frá bókinni og því hvernig björgunarsveitarfólk er t.d. búið að bjóða sig fram til að fara til Seyðisfjarðar og aðstoða heimafólk til dæmis við að bjarga verðmætum eftir eyðileggingu aurskriðanna.
Nú er glatt í hverjum hól og líka í fjöllunum norður á Ströndum. Þessa dagana fara þar fram búsetuskipti álfa eins og annars staðar á landinu. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, ræddi í dag um álfa og hverju megi eiga von á frá þeim. Hún talaði við Jeinebu Rós Matthildardóttur sem er svo heppin að eiga jólaálf og Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur sem heyrði í æsku fagran álfasöng.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR