Íslensk hjón um sjötugt ákváðu síðastliðið haust að kaupa hjólhýsi, keyra til Spánar og hafa vetursetu þar og flakka milli tjaldstæða en örlögin höguðu því þannig að þau dvöldu á sama tjaldstæðinu nánast allan veturinn. Þar var gott að vera, góður hópur af fólki sem koma víða að úr Evrópu og hélt úti skemmtilegri dagskrá.
Hjónin Abelína Hulda Harðardóttir og Halldór Björnsson eru heima í stuttu fríi og ætla aftur í hjólhýsið sitt sem staðsett er í Danmörku í sumar og svo er stefnan tekin aftur til Spánar í haust.
Spunasystur eru hópur um 16 kvenna í Rangárvallasýslu sem hafa hist tvisvar í mánuði síðan 2013 til að spinna og vinna úr íslenskri ull. Í upphafi voru þetta fjórar konur sem hittust til að spinna en hópurinn hefur stækkað jafnt og þétt. Spunasystur hafa sótt ýmis konar námskeið í vinnslu og meðferð ullarinnar og miðlað öðrum í hópnum af þekkingu sinni. Tvær spunasystur komu til okkar í dag og sögðu okkur meira frá starfi þeirra, þær Maja Siska og Elísabet Steinunn Jóhannesdóttir.
Við heyrðum svo í Þórhildi Tinnu, en hún er einn skipuleggjenda listahátíðarinnar LungA, sem fram fer 15.-22.júlí næstkomandi. Hundruðir fara austur ár hvert á hátíðina og en skipuleggjendur byrja á því að halda upphitunarviðburð í kvöld á Húrra í Reykjavík. Þórhildur Tinna sagði okkur frá dagskránni á hátíðinni í ár og viðburðinum í kvöld.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson