Mannlegi þátturinn

Á móti straumnum, barnaskýrslur og póstkort frá Spáni


Listen Later

Veiga Grétarsdóttir er fyrsta manneskjan til að róa 2.000 kílómetra í kringum Ísland á móti straumnum. Þetta er talið sambærilegt afrek og að klífa fjallið K2. En hennar persónulega ferð er ekki síður merkileg. Hún fæddist sem strákur í afskekktu sjávarþorpi á Vestfjörum Íslands fyrir 44 árum síðan. Eftir að hafa gifst og eignast börn, eftir að hafa tvívegis reynt að svipta sig lífi og eftir gríðarlega innri baráttu, ákvað hún að fara í kynleiðréttingu. Um þessi tvö ferðalög lífs Veigu er fjallað í nýrri heimildarmynd, Á móti straumnum, sem er sýnd á RIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Veiga kom í þáttinn og sagði okkur sína sögu.
Í gær var UmBi: Barnaskýrsla til Barnaréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem börn á Íslandi hafa unnið um málefni sem á þeim brenna, kynnt fyrir Barnaréttanefnd Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta skipti sem börn á Íslandi senda eigin skýrslu til nefndarinnar og er skýrslan kynnt samhliða skýrslu níu frjálsra félagasamtaka um stöðu mannréttinda barna á Íslandi og hvernig Íslandi gengur að uppfylla Barnasáttmálann. Við fengum Jökul Inga Þorvaldsson, formann ungmennaráðs UNICEF og einn ritstjóra barnaskýrslunnar og Þóru Jónsdóttur, frá Barhaheillum, sem var í ritstjórn viðbótarskýrslu níu frjálsu félagasamtakanna, í þáttinn og fengum að vita hvað kemur fram í þessum skýrslum og af hverju það er svona mikilvægt að skýrslurnar séu tvær frá þessum tveimur sjónarhornum.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag og í þessu póstkorti dásamaði Magnús haustið við Costa Blanca og þykir það besti tími ársins. Það var sagt frá strandlífi sem er í raun önnum kafið iðjuleysi og barátta við náttúruöflin. Magnús reyndi líka að finna eitthvað jákvætt við fámennið vegna farsóttarinnar. Alicante nýtur þess að vera vinsæl meðal Spánverja, en þeir fíla hvorki Benidorm né Torremolinos og ferðamannastaðir eru að breytast í draugaborgir og bæi.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners