Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Þátturinn fjallar um Önnu Margarethu Buxtehude, dóttur tónskáldsins Dietrichs Buxtehude.
    Lesari: Björn Þór Sigbjörnsson.
    Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • 02.02.2017
    Johann Peter Emilius Hartmann var eitt merkasta tónskáld Dana á 19. öld, en eiginkona hans, Emma Hartmann, samdi líka sönglög og stutt tónverk sem gefin voru út undir dulnefninu Frederik Palmer. Fjallað er um Hartmann fjöldkylduna, sem var stór því Hartmann og Emma eignuðust níu börn á árunum 1831-1845. Barneignirnar tóku svo á heilsu Emmu að árið 1841 skrifaði hún Hartmann gamansamt bréf í nafni barna þeirra og bað hann að hætta að panta storkinn, nóg væri komið. Eitt af börnum Hartmann hjónanna, Maria, rataði á skemmtilegan hátt inn í sögu eftir H.C. Andersen sem var vinur fjölskyldunnar. Emil sonur Hartmann hjónanna varð tónskáld og Oluf sonur hans varð listmálari, en dó ungur og fyrir jarðarför hans samdi Carl Nielsen tónverkið „Ved en ung Kunstners Baare" eða „Við líkbörur ungs listamanns". Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Hin gömlu kynni
    Hjá mörgum enskumælandi þjóðum er venja að syngja skoska þjóðlagið „Auld Lang Syne“ á gamlárskvöld á miðnætti og taka þá allir saman höndum. Hér á Íslandi er lagið þekkt undir heitinu „Hin gömlu kynni gleymast ei“, en þar er um að ræða þýðingu Árna Pálssonar á ljóði skoska skáldsins Roberts Burns. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 5. jan. 2017 kl. 14.03 verður lagið leikið í margs konar útsetningum, m.a. verður flutt spáný útsetning eftir Gerald Barry sem Ríkisútvarpið fékk senda frá Írska ríkisútvarpinu RTE. Einnig verður leikin útsetning eftir Ludwig van Beethoven og hljóðfærasveitin Kremerata Baltica leikur „Auld Lang Syne“-tilbrigði eftir Franz Waxman frá 1947. Þá verður sunginn Bræðralagssöngur skáta sem ortur er við þetta lag. Einnig verður flutt lagið sem við Íslendingar syngjum um áramótin „Nú árið er liðið“ og verður það sungið bæði á íslensku og færeysku. Lesari: Eiríkur Guðmundsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Um jólaleytið er rétti tíminn til að segja jólasögur og leika tónlist sem tengist nokkrum tilteknum sögum. Lesin eru brot úr sögunum „Jóladraumur“ eftir Charles Dickens, „Áramót á prestssetrinu á Hnotubæ“ eftir Henrik Scharling, „Þytur í laufi“ eftir Kenneth Grahame og „Grenitréð“ eftir Tove Janson.
    Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min