Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • 16.08.2018
    Árið 1854 skrifaði skáldið Benedikt Gröndal bréf til Árna Helgasonar stiftprófasts í Görðum. Árni hafði falast eftir bókinni „Hermann og Dóróthea“ eftir Goethe, og Gröndal sendi honum bókina með bréfinu. Sagðist Gröndal vera mjög hrifinn af þessu skáldverki, en þó fann hann á bókinni þann galla að Dóróthea talaði of mikið og það væri óviðkunnanlegt að stúlkur töluðu svo mikið og fullorðinslega. Í þættinum verður leikinn konsertforleikurinn „Hermann og Dóróthea“ sem Robert Schumann samdi út frá verki Goethes og fluttar verða tónsmíðar sem tengjast tveimur öðrum skáldverkum Goethes, ballaðan „Brúðurin frá Korintu“ eftir Carl Loewe og dúett Werthers og Karlottu úr óperunni „Werther“ eftir Jules Massenet. Lesarar eru Leifur Hauksson og Halla Þórlaug Óskarsdóttir.
    0 min
  • Árið 1854 skrifaði skáldið Benedikt Gröndal bréf til Árna Helgasonar stiftprófasts í Görðum. Árni hafði falast eftir bókinni „Hermann og Dóróthea“ eftir Goethe, og Gröndal sendi honum bókina með bréfinu. Sagðist Gröndal vera mjög hrifinn af þessu skáldverki, en þó fann hann á bókinni þann galla að Dóróthea talaði of mikið og það væri óviðkunnanlegt að stúlkur töluðu svo mikið og fullorðinslega. Í þættinum verður leikinn konsertforleikurinn „Hermann og Dóróthea“ sem Robert Schumann samdi út frá verki Goethes og fluttar verða tónsmíðar sem tengjast tveimur öðrum skáldverkum Goethes, ballaðan „Brúðurin frá Korintu“ eftir Carl Loewe og dúett Werthers og Karlottu úr óperunni „Werther“ eftir Jules Massenet. Lesarar eru Leifur Hauksson og Halla Þórlaug Óskarsdóttir.
    52 min
  • 26.07.2018
    Í þættinum verða flutt atriði úr óperettunni „Nitouche“ eftir franska tónskáldið Hervé. Hann hét réttu nafni Louis Auguste Florimond Ronger, fæddist árið 1825 og dó 1892. Hervé samdi yfir 100 óperettur, en þekktust er „Mam´zelle Nitouche“ sem á íslensku hefur einfaldlega verið kölluð „Nitouche“. Hún var frumflutt í París 1883 og varð vinsæl víða um lönd. Í febrúar 1941 var „Nitouche“ í fyrsta skipti sýnd á Íslandi þegar Leikfélag Reykjavíkur og Tónlistarfélagið tóku höndum saman og settu óperettuna á svið í Iðnó, en sýningin sló öll fyrri aðsóknarmet. Óperettan fjallar um unga stúlku í klausturskóla, Denise. Hún þykist vera mikið dyggðaljós, en er ekki öll þar sem hún er séð. Hið sama á við um organista klaustursins, hann hefur samið óperettu undir dulnefni og gæti það orðið mikið hneyksli ef upp kæmist. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Vera Illugadóttir.
    0 min
  • 31.05.2018
    Fyrir 50 árum, 26. maí 1968, var skipt úr vinstri yfir í hægri umferð hér á Íslandi og var af því tilefni efnt til samkeppni um lög við texta sem Kristján frá Djúpalæk hafði ort um breytinguna. Öll lögin í samkeppninni fengu nafnið „H-lagið“ og átti Þorvaldur Halldórsson verðlaunalagið. Til er hljóðritun af lagi Þorvaldar og 5 öðrum lögum úr samkeppninni og verða þau flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 31. maí kl. 14.03. Höfundar hinna laganna fimm voru Birgir Marinósson, Birgir Helgason, Magnús Pétursson, Sigfús Halldórsson og Jón Múli Árnason. Ragnar Bjarnason söng öll lögin með hljómsveit sinni. Í þættinum verða einnig leikin brot úr útsendingu Ríkisútvarpsins á H-daginn (eins og dagurinn þegar skipt var yfir í hægri umferð var kallaður). Jón Múli Árnason var þá á þularvakt og skipti frá hljóðstofu á Skúlagötu yfir á fréttamann í bíl þegar kom að því að aka frá vinstri vegarhelmingi yfir á þann hægri kl. 6 um morguninn.
    0 min
  • 24.05.2018
    Píanókonsert Mozarts nr.9 í Es-dúr K.271 hefur oft verið kallaður „Jeunehomme“-konsertinn því talið var að tónskáldið hefði samið hann fyrir franskan píanóleikara, ungfrú Jeunehomme, sem hefði komið til Salzborgar, heimabæjar Mozarts. Tónlistarfræðingum gekk samt illa að finna heimildir um ungfrú Jeunehomme og mönnum fannst líka dálítið skrýtið að í bréfum sínum kallar Mozart hana „Jenomy“. Árið 2004 sýndi tónlistarfræðingurinn Michael Lorenz fram á það að konsertinn var í raun og veru saminn fyrir píanóleikarann Victoire Jenamy sem var dóttir vinar Mozarts, ballettdansarans Jean-Georges Noverre. Mozart samdi einnig ballettinn „Les Petits Riens“ (Smámunirnir) fyrir Noverre. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 24. maí kl. 14.03 verður leikinn hægi kaflinn úr píanókonsert Mozarts nr.9 sem ætti í rauninni að kallast Jenamy-konsertinn en ekki Jeunehomme-konsertinn. Einnig verður leikinn ballettinn „Les Petits Riens“. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min