Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • 07.02.2019
    Á þessu ári eru liðin 50 ár síðan fyrsti maðurinn steig á tunglið og er þess minnst með ýmsum hætti. En hugmyndir um tunglferðir voru komnar fram löngu áður en tæknin gerði mönnum kleift að ferðast þangað. Í þættinum verða flutt atriði úr nokkrum óperum og óperettum sem fjalla um ferðir til tunglsins. Það eru óperurnar „Lífið á tunglinu“ eftir Joseph Haydn og „Ferð herra Brouceks til tunglsins“ eftir Leos Janácek, og óperetturnar „Ferðin til tunglsins“ eftir Jacques Offenbach og „Frú Lúna“ eftir Paul Lincke. Elsta verkið er frá árinu 1777 og það yngsta frá 1920. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 31.01.2019
    Í þættinum verður leikið hið fræga „Adagio í g-moll“ eftir barokktónskáldið Tomaso Albinoni. Sannleikurinn er sá að verkið er ekki nema að nokkru leyti eftir Albinoni og jafnvel vafamál að það sé yfirleitt eftir hann. Tónlistarfræðingurinn Remo Giazotto gaf verkið út árið 1958 og sagði að það væri útsetning sín á broti úr kirkjusónötu eftir Albinoni sem hann hefði fundið í gömlu handriti. Handritið kom hins vegar aldrei fyrir almenningssjónir og sumir halda því fram að það hafi aldrei verið til, heldur sé Giazotto höfundur verksins. Í þættinum verður einnig leikinn Kanón eftir Johann Pachelbel og flutt önnur verk eftir Albinoni og Pachelbel.
    0 min
  • Víkingur leikur Bach
    Flutt er tónlist af Bach-geislaplötu píanóleikarans Víkings Heiðars Ólafssonar sem kom út hjá Deutsche Grammophon á liðnu ári. Platan hefur fengið frábæra dóma í erlendum fjölmiðlum og verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna BBC Music Magazine 2019. Einnig verður leikin tónlist af nýrri Bach-geislaplötu fiðluleikarans Hilary Hahn, en hljómdiskur hennar fékk góða dóma í nóvemberhefti tónlistartímaritsins Gramophone þar sem plata Víkings fékk einnig mikið lof. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 17.01.2019
    Í þættinum verður fluttur strengjakvartett í Es-dúr Op. 33 eftir Joseph Haydn. Þessi kvartett er kallaður Brandarakvartettinn af því að tónskáldið stríðir áheyrendum í lokakaflanum með endurteknum hléum svo að verkið virðist hvað eftir annað ætla að enda, en heldur samt áfram. Loks endar það eins og í lausu lofti. Einnig verður leikin píanósónata Haydns nr. 35 í As-dúr þar sem tónskáldið beitir svipuðum brögðum og þykist nokkrum sinnum vera að enda verkið áður en það endar í raun og veru.
    0 min
  • Tónverk og skáldverk tileinkuð janúar
    Fjallað er um tónsmíðar og skáldverk sem eru tileinkuð janúarmánuði. Meðal annars verður lesið brot úr sögunni „Tólf með póstvagninum“ eftir H.C. Andersen og fluttur janúarkaflinn úr ballett sem danska tónskáldið Knudåge Riisager samdi upp úr sögunni. Af öðrum tónskáldum sem koma við sögu má nefna Pjotr Tsjaíkovskí, György Kurtág og Tómas R. Einarsson. Lesin verða ljóð um janúar eftir Jóhannes úr Kötlum og Snorra Hjartarson. Lesari er Leifur Hauksson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Jórunn Viðar
    Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Jórunnar Viðar tónskálds, en hún fæddist í Reykjavík 7. desember 1918. Í tilefni af því eru verk eftir Jórunni flutt í þættinum, meðal annars ballettinn „Eldur“, svítan „Þjóðlífsþættir“ fyrir fiðlu og píanó og sönglagið „Týnd er hver varða“ úr kvikmyndinni „Síðasti bærinn í dalnum“ frá 1950. Einnig verða sungin hin þekktu jólalög Jórunnar: „Það á að gefa börnum brauð“ og „Jól“, og flutt verða brot úr viðtölum við tónskáldið. Þá flytja Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir lag Jórunnar „Ung stúlka“, en það má finna á geislaplötu þeirra með sönglögum Jórunnar sem nýlega kom út í tilefni af aldarafmælinu. Er það í fyrsta skipti sem þetta lag kemur út á plötu. Lesari í þættinum er Jórunn Sigurðardóttir. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Lög við ljóð Þorsteins Valdimarssonar
    Í þættinum eru flutt sönglög og tónverk við ljóð Þorsteins Valdimarssonar skálds, en á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu hans. Mörg tónskáld hafa samið tónlist við ljóð hans og má þar nefna Sigfús Halldórsson, Pál Pampichler Pálsson, Huga Guðmundsson og Þóru Marteinsdóttur. Þorsteinn Valdimarsson var tónlistarmenntaður og samdi sjálfur lög við sum ljóð sín. Lesari í þættinum er Guðni Tómasson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Chopin
    Tónskáldið Frédéric Chopin samdi fjölmarga dansa fyrir píanó: masúrka, pólónesur og ekki síst valsa. Aðeins er þó vitað um einn menúett eftir hann og er hann 2. kafli í píanósónötu nr.1 í c-moll sem Chopin samdi 18 ára gamall árið 1828. Þessi sónata hefur fallið í skuggann af seinni sónötum Chopins og heyrist fremur sjaldan. Hún hljómar í þættinum og einnig eru leiknir ýmiss konar dansar eftir Chopin, þar á meðal tveir valsar sem talið er vafasamt að Chopin hafi samið þótt þeir hafi verið eignaðir honum.
    0 min
  • Béla Bartók
    Ungverska tónskáldið Béla Bartók fæddist árið 1881 og Elza systir hans fjórum árum seinna. Árið 1903, þegar Bartók var tuttugu og tveggja ára gamall, fór hann að kalla systur sína Böske. Í því var fólgin pólitísk yfirlýsing. Bartók vildi sýna þjóðrækni sína og andstöðu við austurrísk yfirráð með því að gefa nafni systur sinnar ungverskari hljóm. Á þessum tíma samdi hann líka sinfóníu sem hann helgaði ungversku frelsishetjunni Kossuth. Og árið 1905 hóf hann að safna ungverskum þjóðlögum og notaði mörg þeirra sem uppistöðu í verk sín. Í þættinum „Á tónsviðinu“ verða leikin verkin „Kossuth“ og „15 ungverskir sveitasöngvar og -dansar“ eftir Bartók og lesin verða brot úr bréfum hans til móður sínnar og systur þar sem hann hvetur þær til að hætta að tala þýsku saman og tala heldur ungversku. Lesarar eru Eiríkur Guðmundsson og Jórunn Sigurðardóttir.
    0 min