Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Hundrað ár frá fyrri heimsstyrjöld
    Á þessu ári liðin 100 ár frá lokum heimsstyrjaldarinnar fyrri, en friður var saminn 11. nóvember 1918. Söngvar tengdir stríðinu verða fluttir í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 8. nóv. Þekktastur þeirra er líklega „It´s a long way to Tipperary“, en samt er hann gamansöngur og fjallar ekkert um stríð. Söngvarnir frá árum fyrri heimsstyrjaldar sýna mismunandi sjónarhorn á stríðið. Sumir eru hressilegir hvatningarsöngvar til hermannanna, eins og „Pack up your troubles“, aðrir eru angurværir ástarsöngvar sem beina huganum til Frakklands, eins og „Roses of Picardy“ og svo eru söngvar til þess að hughreysta ástvini hermannanna sem biðu heima, eins og „Keep the home fires burning“. En á vígstöðvunum áttu hermennirnir til að syngja háðsádeilusöngva á stríðið eins og „Oh, what a lovely war“ (Ó, þetta er indælt stríð). Í þættinum verða lesin brot úr bréfum hermanna á vígsstöðvunum og lesarar eru Guðni Tómasson og Björn Þór Sigbjörnsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Allraheilagramessa
    Allraheilagramessa er 1. nóvember og daginn eftir, 2. nóvember, er önnur messa nátengd hinni: allrasálnamessa. Í þættinum „Á tónsviðinu“ 1. nóvember verður flutt tónlist sem tengist þessum tveimur messum. Þar á meðal er messutónlist eftir William Byrd, hin þekkta Litanía eftir Franz Schubert, sönglagið „Allerseelen“ eftir Richard Strauss og Equali fyrir fjórar básúnur eftir Ludwig van Beethoven. Í Englandi tíðkaðist lengi að fátæk börn færu á milli húsa á allrasálnamessu og syngju söngva, en í staðinn fengu þau svokallaðar „sálarkökur“, kringlóttar kökur sem aðeins voru bakaðar fyrir þetta tækifæri. Þetta var kallað „að fara að sála“ - „to go souling“ á ensku. Í þættinum verður sunginn einn af þeim söngvum sem venja var að syngja fyrir sálarköku. Lesari í þættinum er Jórunn Sigurðardóttir.
    0 min
  • Dansar eftir Mosart og Beethoven
    Í þættinum verða leiknir dansar eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Ludwig van Beethoven. Mozart hafði mjög gaman af að dansa og í bréfi sem hann skrifar föður sínum árið 1783 segir hann frá dansleik sem hann hélt sjálfur, en ballið hófst klukkan 7 að kvöldi og endaði klukkan 6 um morguninn. Mozart samdi líka fjölmarga dansa og sumir þeirra hafa auknefni eins og „Sleðaferðin“, „Þrumuveðrið“ og „Bardaginn“. Beethoven hafði líka gaman af dansi og bæði tónskáldin sömdu danstónlist fyrir almenna dansleiki í keisarahöllinni í Vín. Nokkrir af þessum dönsum verða leiknir í þættinum og einnig atriði úr óperu Mozarts „Don Giovanni“ þar sem dansar koma mikið við sögu.
    0 min
  • Jón Ásgeirsson tónskáld 90 ára
    Þátturinn „Á tónsviðinu“ verður helgaður Jóni Ásgeirssyni tónskáldi, sem er níræður á þessu ári, en Jón fæddist 11. október 1928. Hann hefur samið margs konar tónverk svo sem kammertónsmíðar, hljómsveitarverk og óperur, en þekktasta tónsmíð hans er samt líklega sönglagið „Maístjarnan“ sem Jón samdi árið 1981 fyrir leikgerð Sveins Einarssonar af sögunni „Hús skáldsins“ eftir Halldór Laxness. Í þættinum verða leikin sönglög og kaflar úr verkum eftir Jón, meðal annars úr óperunum „Þrymskviðu“ frá 1974 og „Galdra-Lofti“ frá 1996. Flutt verður brot úr viðtali sem Þorkell Sigurbjörnsson tók við Jón árið 1969 og einnig úr öðru viðtali sem Ingibjörg Eyþórsdóttir tók við hann árið 2008, en Jón segir þar meðal annars frá því hvernig „Maístjörnunni“ var tekið þegar hann kom með lagið nýsamið 1981.
    0 min
  • 04.10.2018
    Ólafur Jóhann Sigurðsson fæddist 26. september 1918 og lést í júlí 1988. Í tilefni af því að 100 ár eru frá fæðingu hans verður flutt tónlist við verk hans í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 4. október. Ólafur Jóhann var einn merkasti rithöfundur Íslands á 20. öld og margir tónsmiðir hafa samið tónlist við verk eftir hann. Meðal verka sem verða flutt í þættinum er „Draumkvæði um brú“ eftir Sigursvein D. Kristinsson, kafli úr verkinu „Litlar ferjur“ eftir Atla Heimi Sveinsson og tónlist við sjónvarpsmyndina „Litbrigði jarðarinnar“ eftir Ríkarð Örn Pálsson, en myndin var gerð 1991 og byggð á samnefndri sögu Ólafs Jóhanns. Þá verða flutt sönglög og stutt kórverk eftir fleiri höfunda, svo sem Árna Björnsson og Örlyg Benediktsson. Lesari í þættinum er Leifur Hauksson, en einnig verða fluttar hljóðritanir með lestri Ólafs sjálfs.
    0 min
  • 27.09.2018
    Tónskáldin Felix Mendelssohn og Richard Wagner voru samtíðarmenn og var Mendelssohn aðeins eldri en Wagner, fæddur 1809, en Wagner 1813. Viðhorf Wagners gagnvart Mendelssohn einkenndist af mótsögnum og má jafnvel segja að um hálfgert ástar-haturs samband hafi verið að ræða frá Wagners hálfu. Á æskuárum lýsti hann oft yfir aðdáun á tónlist Mendelssohns, en síðar reyndi hann að gera lítið úr henni og blandaðist andúð á Gyðingum þar inn í afstöðu hans. Í þættinum „Á tónsviðinu“ 27. sept. verður sagt frá sambandi Mendelssohns og Wagners, lesin verða brot úr skrifum Wagners og flutt tónlist eftir þá báða. Svo undarlega vill til að í hefðbundnum kirkjubrúðkaupum eru þeir báðir ómissandi, Brúðarmarsinn sem venja er að leika þegar gengið er inn í kirkjuna er eftir Wagner, en útgöngumarsinn eftir Mendelssohn. Lesari í þættinum er Björn Þór Sigbjörnsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 20.09.2018
    Á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu skáldkonunnar Jakobínu Sigurðardóttur. Mörg lög hafa verið samin við ljóð hennar og í þættinum „Á tónsviðinu“ á Rás 1, fim. 20. september kl. 14.03, verður flutt tónlist við ljóð Jakobínu. Jórunn Viðar hefur samið lög við þrjú ljóð eftir Jakobínu, þekktast þeirra er líklega „Vökuró“, en hin eru „Vorljóð á Ýli“ og „Varpaljóð á Hörpu“. Af öðrum tónskáldum má nefna Sigursvein D. Kristinsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Hreiðar Inga Þorsteinsson og æskuvinkonu Jakobínu, Ingibjörgu Sigurðardóttur. Á seinni árum hefur dótturdóttir Jakobínu, Ingibjörg Azima, samið lög við ljóð ömmu sinnar og verður rætt við hana í þættinum. Einnig verður rætt við dóttur Jakobínu, Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, og flutt verða brot úr viðtali sem Inga Huld Hákonardóttir tók við Jakobínu árið 1975. Lesari er Vera Illugadóttir.
    0 min
  • 13.09.2018
    Píanótríó nr. 4 í e-moll Op.90 eftir Antonin Dvorák er kallað Dumky-tríóið, en „dumky“ er fleirtalan af orðinu „dumka“ sem er komið af úkraínska orðinu „duma“. Orðið var notað yfir söguljóð sem oft voru dapurleg í anda. Á 19. öld var farið að rannsaka þjóðlögin sem fylgdu ljóðunum og tónskáld af slafneskum uppruna tóku dúmkurnar upp á sína arma, einkum Antonín Dvorák. Í Dumky-tríói hans eru 6 kaflar sem allir eru dúmkur. Hjá Dvorák merkir orðið yfirleitt tónlist þar sem tregablandnir kaflar skiptast á við hraða og fjörmikla kafla. Í þættinum Leiknir verða þættir úr Dumky-tríóinu, en einnig þáttur í dúmku-formi úr strengjakvartett Dvoráks nr.10 í Es-dúr svo og dúmkur eftir Frédéric Chopin, Pjotr Tsjaíkovskí og Leos Janácek.
    0 min
  • Márar og Alhambra
    Orðið „Márar“ hefur verið notað um múslima frá Afríku sem lögðu undir sig stóran hluta Íberíuskaga og þar með mestallan Spán á 8. öld. Márarnir ríktu í nokkrar aldir á Spáni, misstu að vísu nokkurn hluta landsins, en Granada var múslimskt konungsríki til ársins 1492 þegar spænsku konungshjónin Ferdinand og Ísabella lögðu það undir sig. Flestum sagnfræðingum ber saman um það að menning og vísindi hafi blómstrað á Spáni á valdatíma Máranna og hefur Alhambra-höllin í Granada oft verið nefnd sem tákn um það, en hún var byggð á 13. öld og þykir ein fegursta bygging veraldar. Í þættinum Flutt er tónlist múslima, kristinna manna og gyðinga frá valdatíma Máranna á Spáni, en einnig verða leikin seinni tíma tónverk sem tengjast menningu Máranna, svo sem „Recuerdos de la Alhambra“ eftir Francisco Tárrega og „Lindaraja“ eftir Claude Debussy. Þótt ótrúlegt megi virðast kemur Tarzan líka við sögu í þættinum. Lesari er Leifur Hauksson og umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min