Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Vortónlist eftir Schumann
    Í þættinum er leikin tónlist sem tengist vorinu eftir Robert Schumann. Meðal annars hljómar fyrsti kaflinn úr Vorsinfóníunni, en það var fyrsta sinfónía Schumanns, samin árið 1841. Einnig verða fluttir vorsöngvar sem Schumann samdi við ljóð eftir ýmsa höfunda. Þótt söngvarnir tengist allir vorinu eru þeir ólíkir, sumir þeirra fagna vorinu innilega eins og söngurinn „Frühlingsgruss“ (Vorkveðja) við ljóð eftir Hoffmann von Fallersleben, aðrir eru angurværir eins og „Erstes Grün“ (Fyrsta grænkan) við ljóð eftir Justinus Kerner. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 11.04.2019
    Í sumum klukkuturnum, bæði hér á Íslandi og erlendis, má finna klukkuspil sem leika reglulega eitthvert stef. Af þekktum erlendum klukkum má nefna Big Ben í Lundúnum og Salzborgarklukkuspilið í Salzborg í Austurríki, fæðingarbæ Mozarts. Hér á Íslandi slá klukkur Hallgrímskirkju í Reykjavík, Akureyrarkirkju og Siglufjarðarkirkju stef. Fjallað er um klukkustef og hlustendur fá að heyra nokkur slík stef, bæði leikin af klukkum og sungin. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    0 min
  • Stefán Hörður Grímsson
    Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Stefáns Harðar Grímssonar skálds, en hann fæddist 31. mars 1919 og dó 2002. Leikin er tónlist sem samin hefur verið við ljóð Stefáns Harðar eða undir áhrifum frá þeim og er þar af nógu að taka, einkum hafa kvæðin úr ljóðabókinni „Svartálfadansi“ orðið tónskáldum hugstæð. Meðal annars verður flutt tónlist eftir Jón Ásgeirsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Nordal og Hauk Tómasson. Einnig verða fluttar hljóðritanir af lestri skáldsins á tveimur ljóðum sínum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    0 min
  • 21.03.2019
    Ástasamband tónskáldsins Frédérics Chopins og frönsku skáldkonunnar George Sand er frægt í tónlistarsögunni. Fjallað verður um þrjár aðrar konur sem Chopin elskaði einnig: Konstancju Gladkowsku, Mariu Wodzinsku og Delfinu Potocku. Flutt verða verk sem hann tileinkaði þessum konum og meðal þeirra tónsmíða sem koma við sögu eru píanókonsert nr.2 í f-moll, noktúrna í Es-dúr ópus 9 og vals í Des-dúr ópus 64 nr.1 sem kallaður er Mínútuvalsinn. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 07.03.2019
    Undanfarið hafa kröfur Katalóníumanna um sjálfstæði og réttarhöld yfir katalónskum sjálfstæðissinnum verið í fréttum. Í sambandi við þær fréttir er fróðlegt að skoða æviminningar sellóleikarans Pablos Casals, „Ljós og skuggar á langri leið“. Pablo Casals var einn besti sellóleikari tónlistarsögunnar og vakti aðdáun um allan heim fyrir list sína. Hann fæddist árið 1876 í El Vendrell í Katalóníu og lifði mikla umbrotatíma: tvær heimsstyrjaldir og einnig borgarastríðið á Spáni sem braust út 1936. Casals var hlynntur sjálfstæði Katalóníu, en engu að síður vinur spænsku konungsfjölskyldunnar og setti það hann stundum í dálítið óþægilega stöðu. Lesið verður upp úr æviminningum Pablos Casals og fluttar hljóðritanir með sellóleik hans. Lesari er Leifur Hauksson og umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 28.02.2019
    Á 19. öld þróaðist í þýskalandi óperuform sem kallað var „spieloper“ eða „leikópera“. Þetta voru léttar gamanóperur þar sem yfirleitt var talaður texti á milli tónlistaratriðanna. Helstu tónsmiðirnir í þessum flokki voru Albert Lortzing og Otto Nicolai, og í þættinum verða leikin nokkur atriði úr óperum þeirra. Flutt verða atriði úr óperunum „Keisari og smiður“, „Veiðiþjófurinn“ og „Vopnasmiðurinn“ eftir Lortzing og óperunni „Vindsórkonurnar kátu“ eftir Nicolai. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 14.02.2019
    Valentínusarmessa er 14. febrúar og í sumum löndum er dagurinn frá fornu fari helgaður elskendum, venja er að skrifa ástarbréf eða gefa elskunni sinni gjafir þennan dag. Hér á Íslandi var þessi venja lengi óþekkt, en fór að breiðast út upp úr 1990. Flutt er flutt tónlist af ýmsum toga sem tengist Valentínusardeginum. Þar kom ýmsir tónsmiðir við sögu, svo sem Johannes Brahms, John Cage, Irving Berlin og Willie Nelson. Lesið verður ljóð Ófelíu um Valentínusardag úr leikritinu „Hamlet“ eftir Shakespeare, en allmörg tónskáld hafa samið lög við það ljóð. Einnig verður lesið upp úr sögunni „Grímur í giftingarhugleiðingum“ eftir Richmal Crompton, sem fjallar um það þegar prakkarastrákurinn Grímur grallari reyndi að halda upp á Valentínusardaginn. Lesarar í þættinum eru Vera Illugadóttir og Leifur Hauksson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min