Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Kvik yndi 3: Ari Eldjárn og íslenskt bíó

    Í þriðja þætti fær Kvik yndi gestinn Ara Eldjárn sem með sönnu má kalla kvikmyndnörd sem býr yfir snarskemmtilegri vitnesku um íslenska kvikmyndagerð. Í spjalli við Ragnar dúkka upp fáheyrðar sögur og Ari gengst við kvikmyndagræjublæti sínu.

    Melkorka og Ragnar taka einnig stöðuna fréttum og ræða meðal annars Russian Doll, hundasleðakeppni, Spielberg og Netflix.

    Þáttur fyrir fólk sem hefur yndi af kvikmyndum!

    1 hr 43 min
  • Skylduáhorf #17 – Alan Partridge

    Skylduáhorf snýr aftur úr löngum dvala með einum ástsælasta grínkarakter allra tíma, í það minnsta í huga Ragnars þáttastjórnanda: Alan Partridge.

    Alan, leikinn af Steve Coogan, er ekki mörgum Íslendingum kunnur, en er þó einn vinsælasti karakter Bretlands og hefur verið síðasta aldarfjórðunginn. Þessa dagana er verið að sýna nýja þætti með honum á BBC og nú þegar er búið að staðfesta aðra í bígerð, auk þess sem von er á framhaldi á kvikmyndinni vinsælu: Alan Partridge: Alpha Papa.

    Ragnar fékk kanadíska grínistann og rithöfundinn York Underwood í heimsókn í þáttinn til að ræða allt sem við kemur Alan Partridge, enda af nægu að taka og því ekki eftir neinu að bíða. Ýttu á play!

    Aha!

    1 hr 30 min
  • Bíó Tvíó #119 – Skammdegi

    Þráinn Bertelsson er kláraður í Bíó Tvíó þætti vikunnar! Andrea og Steindór horfðu á Skammdegi frá 1985, mynd um ekkju, þrjú hillbilly systkini, mögulega drauga, fiskeldismógúla og snjófarartæki. En hvernig er best að spyrja til vegar á Íslandi? Er hægt að láta hunda reyna við fólk? Og hvernig eru Top Trumps spilin? Allt þetta og Stevie Nicks í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 24 min
  • Kvik yndi 2: Segðu mér satt

    Á 5 ára stórafmæli Alvarpsins skýst annar þáttur Kvik yndis í loftið!

    Kvik yndin taka fyrir nýjustu fréttir í kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum ásamt því að ræða niðurstöður Óskarsverðlaunanna. Ragnar reyndist spá rétt fyrir um (glötuð) úrslit bestu myndar…

    En meðal annars kemur í ljós að Melkorka er að gleypa í sig sjónvarpsseríu sem hún fordæmdi uppúr aldamótum og Ragnar þolir fátt minna en þegar fólk reynir að segja honum frá því hvað það dreymdi…zzz…

    Aðal málefni þáttarins eru myndir sem byggðar eru á sönnum sögum. Alger sannleikur, hjarðhegðun, listrænt frelsi, ábyrgð áhorfenda og fleira gúrmei.

    Þáttur fyrir alla sem hafa yndi af kvikmyndum.

    1 hr 39 min
  • Bíó Tvíó #118 – Sundáhrifin

    Síðasta mynd Sólveigar Anspach, Sundáhrifin AKA L’effet aquatique AKA The Together Project, er til umfjöllunar í Bíó Tvíó þætti vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á mynd sem byrjar í Frakklandi og flakkar til Íslands og gerist í sama heimi og 420 myndin Skrapp út. En eru íslenskir karlmenn með shrinkage? Hversu spennandi eru gæsir? Og hvernig leysum við samskipti Ísraels og Palestínu? Allt þetta og geothermical energy í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 20 min
  • Kvik yndi 1: Óskarinn og þannig drasl

    Í dag hefst nýr þáttur á Alvarpinu sem ber heitið Kvik yndi. Stjórnendurnir, Melkorka Huldudóttir og Ragnar Hansson, hafa mikið yndi af kvikmyndum og hafa samtals stjórnað þrem þáttum um kvikmyndir hér á Alvarpinu. Trí ló gík, Popp og fólk og Skylduáhorf. Nú kveður við nýjan tón og er Kvik yndi fjölbreyttur þáttur þar sem fjallað verður um kvikmyndir og sjónvarpsefni frá öllum mögulegum og ómögulegum vinklum.

    Í þessum fyrsta þætti eru ræddar nýjar fréttir úr kvikmyndaheiminum, Óskarinn og verðlaunahátíðir teknar fyrir og í samtalið slæðast líka Bítlarnir, Netflix, broflakes og þannig drasl..

    Þáttur fyrir alla sem hafa yndi af kvikmyndum.

    1 hr 39 min
  • Fillifjónkan 32. þáttur – Næturdrottningar

    Lára, minjavörður með varalit, fræðir hlustendur um hvað kom fyrir húsið sem Astrid Lindgren, Philip drottningamaður og Múmínálfarnir bjuggu í saman..

    Kvikmyndagerðakonan Júlía segir frá örlögum gamla veskisins sem hýsti sígarettustubba síðan djammið 2011.

    Ævintýri karókíglaða stelpuhópsins halda áfram og sagnfræðilýsingar frá steinöld eru á sínum stað.

    Spil dagsins er hin heilaga viskukýr.

    1 hr 18 min
  • Bíó Tvíó #117 – L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra

    Spennið á ykkur beltin, hlustendur, því það er loksins komið að því. Andrea og Steindór horfðu á L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra, upp úr barnabókinni L7: Hrafnar, Sóleyjar og Myrra, sem kom út 2011. En hvernig er heimildarmyndin um gerð Óskabarna þjóðarinnar? Hvað er hægt að gera við 107 milljónir? Og hvernig eru slæmar ritgerðir um Old Man and the Sea? Allt þetta og permanent í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 36 min
  • Glápið – S03E05 – Barry

    Hvor er verri manneskja, leigumorðinginn eða leiklistarneminn? Glápið reynir að finna svarið við þessari aldagömluspurningu með því að fylgjast með ævintýrum Barry og félaga í borg englanna.

    1 hr 47 min
  • Bíó Tvíó #116 – Óskabörn þjóðarinnar

    Jóhanns Sigmarssonar þríleikurinn er kláraður í þætti vikunnar af Bíó Tvíó. Andrea og Steindór horfðu á Óskabörn þjóðarinnar frá 2000, sem eins og Veggfóður og Ein stór fjölskylda rannsakar karlmennsku með raunsæi og melódrama. En hvernig er best að vaska upp? Hvað er í lagi að par sé lengi hvort frá öðru? Og hver er óska-Björn þjóðarinnar? Allt þetta og Don Cano gallar í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 24 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna