Alvarpið

Alvarpið

Download on the App Store

Alvarpið episodes

  • Bíó Tvíó #95 – Órói

    Þroskasaga unglinga í leikstjórn Baldvin Zetu er til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á Óróa frá 2010 og fylgdust með lífi framhaldsskólabusa að fóta sig í tilverunni. En er góð hugmynd að gera eitthvað jákvætt fyrir sjálfan sig? Hvernig er að vinna í 10-11? Og er sniðugt að borða heilan hvítlauksgeira? Allt þetta og konfekt í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 29 min
  • Bíó Tvíó #94 – Foreldrar

    Seinni hluti svart-hvíta fjölskyldutvíleiks Ragnars Bragasonar og Vesturports, Foreldrar, er tekin fyrir í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á mynd um barneignir og skort þar á með smávægilegar tengingar við Börn. En hvað styrkir ónæmiskerfið? Hvort kom á undan, hænan eða eggið? Hvernig virkar sjálfsfróun? Allt þetta og húfur sem hlæja í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 29 min
  • Fillifjónkan 28. þáttur – Brúðkaupsþátturinn

    Júlía og Lára eru mættar til að fagna haustkomu með heimspekilegum hugleiðingum um brúðkaup,

    Madonnu, skáldsögur og prumpaðar rjómakúlur.

    Hin fullorðna Lára segir frá áformum sínum um að ganga í hnappelduna með tæknimanni þáttarins,

    það er að segja ef brúðarkjóllinn hennar kemst óskaddaður á leiðarenda í tæka tíð.
    Júlía, sem er opinberlega komin á fertugsaldur, hefur ákveðið að hætta á instagram, fá sér
    barbíbleikan varalit og bláan augnskugga.

    1 hr 15 min
  • Bíó Tvíó #93 – Strákarnir okkar

    Strákarnir okkar, kvikmynd um samkynhneigðan knattspyrnumann í leikstjórn Róberts Douglas, er til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór reyna að átta sig á því hver félagsleg staða samkynhneigðra var árið 2005 í metlöngum þætti. En á Steindór að hætta að drekka? Hvað er málið með gaura sem fíla Seinni heimsstyrjöldina? Er í lagi að vera graður ef maður bjargar mannslífum? Allt þetta og Knattspyrnufélag Reykjavíkur í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 38 min
  • Bíó Tvíó #92 – Veggfóður

    Költmyndin Veggfóður (1992) í leikstjórn Júlíusar Kemp er tekin fyrir í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór horfðu á erótíska ástarsögu og kynningu á hljómsveitinni Pís of Keik. En hvaða teiknimyndir eru viðeigandi fyrir hvaða börn? Verður í lagi að sofa hjá vélmennum í framtíðinni? Hvernig var ferill Merzedes Club? Allt þetta og pervertar í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 32 min
  • Bíó Tvíó #91 – Gauragangur

    Gauragangur, kvikmynd Gunnars B. Guðmundssonar frá 2010, um 15 ára skáld og sjálfsfróara er til umfjöllunar í Bíó Tvíó vikunnar. Andrea og Steindór töluðu um myndir um sniðuga gaura sem eru vondir við alla og læra ekkert. En hvers konar árás lenti Andrea í? Hvort var betra á tónleikum Britney Spears eða Solange? Hvað er spunnið í textann í Heims um ból? Allt þetta og lífskúnstnerar í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 34 min
  • Bíó Tvíó #90 – Frost

    Nú er Frost á Fróni… og í Bíó Tvíó vikunnar! Andrea og Steindór horfðu á 72 mínútur af „found footage“ vísindatrylli Reynis Lyngdal og lærðu um frummyndakenningu Platóns. En hvað finnst þeim raunverulega um fólk sem býr á Íslandi? Hvernig eru hermar miðað við alvöru veltur? Og við hvað er Steindór hræddur? Allt þetta og rassinn á Andreu í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 9 min
  • Bíó Tvíó #89 – Kaldaljós

    Ingvar E. og börnin hans eru í fyrirrúmi í kvikmynd Hilmars Oddssonar frá 2004, Kaldaljós. Andrea og Steindór horfðu á yfirnáttúrulega sögu á tveimur tímalínum og veltu fyrir sér hvernig er að gera kvikmyndir upp úr bókum. En hvernig er Tom Cruise í því að hlaupa? Hvað er best að gera til að losna við popp úr góminum? Hvernig á reglan um hlutfallslega yfirburði við Kristbjörgu Kjeld? Allt þetta og ágæti náttúruhamfara í Bíó Tvíó vikunnar!

    24 min
  • Bíó Tvíó #88 – Óðal feðranna

    Óljós pólitík Hrafns Gunnlaugssonar teiknar upp sveit-í-borg klassíkina Óðal feðranna frá 1980. Andrea og Steindór veltu fyrir sér hvort myndin sé sú Bíó Tvíó-legasta sem þau hafa horft á hingað til. En hvaða listamannsnöfn eru góð? Hver vill stofna brauðtertufyrirtæki? Og hvenær skýn Hrafn Gunnlaugsson í gegnum myndina? Allt þetta og hestapyntingar í Bíó Tvíó vikunnar!

    1 hr 24 min

About Alvarpið

From the publisher's feed

Varplendi raddbandanna