MANNLEGI ÞÁTTURINN MÁNUUDAGINN 28.MAÍ - KYNNING Á EFNI
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Lísa Pálsdóttir
Fátt var eldfimara á hernámsárunum en sambönd íslenskra kvenna við erlenda setuliðsmenn, oftast kallað „ástandið“. Ástandið hefur með tímanum orðið ein helsta táknmynd stríðsáranna á Íslandi. Hinsvegar eru ekki öll kurl komin til grafar. Þegar innsigli voru rofin á skjölum forstöðukonu Ungmennaeftirlits lögreglunnar, Jóhönnu Knudsen, árið 2012, komu gögn Ungmennaeftirlitsins í ljós. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sjálfstætt starfandi sagnfræðingur hefur rýnt í gögnin en þau veita nána innsýn í aðgerðir yfirvalda til að sporna við „ástandinu“, og nýja innsýn í samspil fjölmiðla, yfirvalda og þrýstihópa sem með einum eða öðrum hætti komu að því að búa til þjóðarógn úr samböndum íslenskra kvenna og erlendra hermann.
Sögubíllinn Æringi var vígður við leikskólann Tjarnarborg í febrúar 2008 og hefur hann farið á leikskóla, frístundaheimili og verið á ýmsum hátíðum á vegum borgarinnar alla tíð síðan. Bíllinn tekur um 12 börn í einu en þau sitja á púðum og hlusta á sögur á meðan sögumaður situr í stól. Ólöf Sverrisdóttir leikkona hefur séð um Æringja síðan haustið 2008 og segir okkur frá hvernig haldið verður uppá 10 ára afmæli.
Lesandi vikunnar er Anna Bergljót Thorarensen leikskáld, sem skrifar og starfar með Leikhópnum Lottu, sem nýlega frumsýndi Gosa í Elliðaárdalnum.