Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli. Umsjón: Anna Marsbil Clausen Hosted on Acas... more
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.
May 20, 2018Framtíð íslenskrar tunguÞáttur um íslenskt mál. Íslensk-ameríska viðskiptaráðið hélt málþing í New York á dögunum um framtíð íslenskrar tungu, í samstarfi við aðalræðismann Íslands í New York og fyrirtækið Almannaróm. Í þættinum er fjallað um þetta málþing. Auk þess er hugað að því hvernig nafnorðið nótt beygist og loks er rætt um tökuorðið óligarki. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir....more35minPlay
May 13, 2018StarfsheitiÞáttur um íslenskt mál. Starfsheiti og heiti ýmissa embætta hafa tekið breytingum í áranna rás. Fyrir hundrað árum þótti ekki tiltökumál að auglýsa eftir konum og mönnum til ýmissa starfa en sjötíu árum síðar var ekki lengur boðlegt að auglýsa að störf væru aðeins ætluð fólki af öðru kyninu og fóru þá að koma fram ýmis ný starfsheiti. Starfsheiti og kyngreining eru meðal þess sem fjallað er um í þættinum. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir....more35minPlay
May 06, 201806.05.2018Þáttur um íslenskt mál. Mannsröddin er einstök og samspil talfæra og raddar er ekki síður einstakt. Ef ekki væri fyrir rödd væri ekki til talmál. Og ef röddin hefði ekki sína einstöku eiginleika væri ekki hægt að nota blæbrigði í tali og söng. Í þættinum er veitt dálítil innsýn í þetta undursamlega fyrirbæri, röddina. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir....more31minPlay
April 29, 2018Spádómsgáfa og speki fuglaÞáttur um íslenskt mál. Lómur og himbrimi eru taldir spá fyrir um veður, hrossagaukur um hvernig fólki farnast. Mestur spáfugl er þó hrafninn sem oftast er talinn feigðarboði en á það til að bjarga lífi þess sem gerir vel við hann eins og máltækið guð launar fyrir hrafninn er til marks um. Í grein eftir Guðmund Friðjónsson frá Sandi í Aðaldal sem nefnist Hvernig skapast kvæði og sögur? og birtist í Andvara 1937 segir meðal annars frá raunum skáldsins sem vill yrkja þannig að bragð sé að og að þorri manna hafi mjög óljósar hugmyndir um hvað það tekur mikið á að yrkja gott kvæði. Guðmundur endursegir meðal annars greinargerð Edgars Allans Poe um hvernig kvæði hans Hrafninn kom til, eitt þekktasta kvæði sem ort hefur verið. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir....more35minPlay
March 25, 2018KenninöfnFjallað er um kenninnöfn í þættinum og gluggað í meistaraprófsritgerð Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur í þjóðfræði þar sem hún fjallar um kenninafnasiði Íslendinga. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir....more39minPlay
FAQs about Ástarsögur:How many episodes does Ástarsögur have?The podcast currently has 155 episodes available.