Mannlegi þátturinn

Barnaþing, Hulda Jóhannsdóttir og herferð Amnesty


Listen Later

Þriðja barnaþing umboðsmanns barna verður haldið á morgun í Hörpu. Um 150 börn víðs vegar að af landinu, á aldrinum 11-15 ára, eru skráð til þingsins. Börnin sem þingið sækja verða með umræður um umfjöllunarefni sem börnin velja sjálf og niðurstöðurnar verða kynntar ríkisstjórn sem framlag til stefnumótunar í málefnum barna. Salvör Nordal umboðsmaður barna kom í þáttinn til að segja okkur betur frá þinginu, með henni komu Sigtryggur Máni Guðmundsson og Þórey María Kolbeins, þau eru bæði í grunnskóla, hún á Álftanesi og hann er frá Grindavík.
Við heyrðum í Huldu Jóhannsdóttur í dag. Hún er leikskólastjóri í Grindavík og er í sömu stöðu og aðrir frá Grindavík, þurfti að yfirgefa heimilið sitt með hraði og veit ekki hvenær hún getur snúið aftur. Hún skrifaði stöðufærslu á Facebook þar sem hún talaði um samverustund þar sem skólafólk í Grindavík hittist og mikið hafi verið rætt um hugmyndir Almannavarna um að það þurfi að koma á skólahaldi sem fyrst. Hún segir að starfsfólk skólanna skilji það vel, að það sé mikilvægt fyrir börnin. En þau benda líka á að þau eru sjálf starfsfólkið á hrakhólum og í óvissu. Þau hafi líka upplifað áfall, eru búin að missa heimilin sín og eru jafnvel dreifð um landið, eins og aðrir Grindvíkingar. Því þurfi að huga að öllum þegar þessi mál eru rædd, auðvitað börnunum, en líka að starfsfólki skóla og leikskóla í Grindavík. Hulda kom til okkar í dag.
Alþjóðlega herferðin Þitt nafn bjargar lífi stendur yfir á vegum Amnesty og Árni Kristjánsson og Bryndís Bjarnadóttir frá Íslandsdeild Amnesty komu í viðtal til okkar í dag og sögðu okkur frá málunum sem tekin eru fyrir í herferðinni í ár.
Tónlist í þættinum í dag:
Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson og Jóhannes úr Kötlum)
Litli Fuglinn / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson og Jón Thoroddsen)
Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners