Bergur Ebbi Benediktsson er líklega best þekktur sem grínari, en hann hefur skemmt þjóðinni bæði sem hluti af Mið-Íslandi og bara sjálfur með sitt uppistand. Eins og segir í kynningu fyrir nýja uppistandssýningu hans: Bergur Ebbi er einn reyndasti uppistandari landsins með yfir þrettán ára reynslu af uppistandi, fyrirlestrahaldi og alvarlegum jafnt sem gamansömum greiningum á samfélaginu í bókum, pistlum, sjónvarps- og útvarpsefni. Við fengum Berg Ebba í þáttinn í dag og ræddum við hann um grín; hvernig hann semur efnið sitt, hvað er honum innblástur, hver eru efnistökin og hvernig hann vinnur hann úr efninu?
Fasta - Heilsuefling eða öfgar? var heiti á málþingi sem Náttúrulækningafélagið hélt í síðustu viku. Hvað gerist í líkamanum við föstu? Er hún fyrir alla og hver er áhrifaríkasta fastan? Jóhanna Eyrún Torfadóttir næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum var ein þeirra sem flutti erindi á málþinginu þar sem hún velti fyrir sér hversu algengt það er að fólk fasti reglubundið á Íslandi? Jóhanna kom í þáttinn í dag.
Glæðir er lífrænn og bætaefnaríkur blómaáburður úr fersku þangi, hreinu vatni og sóda og framleiddur í litlum skúr á Reykhólum af Guðjóni Gunnarssyni sem jafnan er kallaður Dalli. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, brá sér yfir að Reykhólum og fékka að fræðast um framleiðsluna og að glæðir græðir ekki bara gróður af ýmsu tagi heldur hefur líka reynst fólki vel við t.d. exemi.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson