MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAGUR 09.okt 2019
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Bjartmar Guðlaugsson þarf vart að kynna en hann hefur samið þjóðþekkt lög og er frábær textasmiður auk þess að vera myndlistarmaður. Hann ætlar að koma fram á Sagnakaffi í Borgarbókasafninu í Gerðubergi í kvöld. Bjartmar verður hjá okkur í þættinum og við fáum forsmekkinn að sagnakaffinu og því sem þar fer fram í kvöld.
Alþjóða Geðheilbrigðisdagurinn hefur verið haldinn víðsvegar í heiminum 10. október ár hvert síðan 1992. Markmiðið er að vekja athygli á geðheilbrigðismálum, fræða almenning um geðrækt og geðsjúkdóma og sporna gegn fordómum í garð geðsjúkra. Í ár er markmið dagsins að vekja athygli á mikilvægi sjálfsvígsforvarna og gildi forvarnastarfs. Við fræðumst í þættinum um þennan dag og hvað stendur til í því sambandi.
(Orri Hilmarsson og Kristinn Heiðar Fjölnisson frá stjórn Alþjóða geðheilbrigðisdagsins og Hildur Guðný Ásgeirsdóttir frá Landlæknisembættinu koma í þáttinn.)
Í póstkortinu frá Spáni segir Magnús R. Einarsson frá stéttskiptingunni sem ríkir hjá betlurum, strætissölumönnum og trúbadorum í Alicante. Einnig segir hann frá því hvernig hann var rændur í þessari annars friðsælu borg og þeirri þrautagöngu sem tekur við til að fá aftur kort og síma, þessa tvo lífsnauðsynlegu hluti hverjum manni á erlendri grund.