MANNLEGI ?MÁNUDAGUR. 27.DESEMBER- 2021
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Guðmundur Halldórsson frá Bæ á Selströnd hlaut fyrstur manna afreksmerki
hins íslenska lýðveldis fyrir frækilega björgun skipsfélaga sinna þegar
togarinn Vörður fórst í janúar 1950. Lýsingar á slíkum atburðum frá
þessum tíma og frá fyrstu hendi eru líklega sjaldgæfar en Guðmdunur
skrifaði föður sínum bréf nokkrum dögum eftir þessa atburði og bréfið
barst i hendur Kristínar Einarsdóttur, okkar konu á Ströndum og við heyrðum það lesið af Jakobi Þór Einarssyni.
KatrínJúlíusdóttir fyrrverandi ráðherra og nú framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja sagði frá því nýlega að hún hefði fyrir nokkrum árum verið greind með ADHD og fengið lyf í kjölfarið. Hún viðurkennir að aldrei í lífinu hefði henni dottið í hug að hún væri með ADHD en tilviljun réð því að hún fór í skimun. Hún sagði okkur frá því hvernig lífið var fyrir og eftir greininguna.