
Sign up to save your podcasts
Or


Drekar, forboðin örlög og skrítinn, hálf íslenskur víkinga ættbálkur.... þurfa konur eitthvað meira?
Í 12. þætti af Blautum blaðsíðum köfum við ofan í When the Moon Hatched eftir Sarah A. Parker. Við kynnumst nýjum og öðruvísi töfraheimi s, karakterum sem sitja lengi eftir og ræðum að sjálfsögðu allt og ekkert á milli himins og jarðar.
Ef þú ert fyrir verndandi karlpersónur, sterkar og ákveðnar kvenpersónur, dreka (!!) og áhugaverða nálgun á nýtt töfrakerfi, þá er þetta klárlega bók fyrir þig.
ATH þátturinn innihledur blótsyrði og kynferðislegt orðalag.
Varst þú líka hrifin af Harry Potter, en vildir óska að Hermione og Draco hefðu farið í sleik? Við líka. Þess vegna lásum við bókina Alchemised.
11.þáttur Blautra Blaðsíðna kafar inn í hinn magnaða töfra heim SenLin Yu og þessara frábæru spin-off bók sem er byggð á persónum úr töfraveröld Harry Potters. Hlustaðu með þegar við köfum niður í bókina og förum yfir allt á milli himins og svarta galdurs.
ATH þátturinn inniheldur grafískar lýsingar á kynferðislegum senum og hentar ekki yngri hlustendum.
Í 10. þætti af Blautum blaðsíum fáum við til okkar Ölmu og Fjólu úr TBR listanum, og saman tökum við loksins fyrir bókina Brimstone.
Hinn sjóðheiti Kingfisher, Saeris, Carion og Onyx, refurinn sem stal hjörtum okkar, snúa aftur í annarri bók Fae and Alchemy seríunni eftir Callie Hart, og við urðum ekki fyrir vonbrigðum.
Ef þú ert fyrir vampíur, skuggapabba, gott (mjög gott) spice og umræður sem hefðu líklega átt að vera klipptar út… en voru það ekki. þá er þetta þáttur fyrir þig.
Þangað til næst!
ATH þátturinn inniheldur kynferðistlegt orðalag og spoilera.
Er skammdeigið að fara illa í þig? Vantar þig spice, spice og meira spice til að létta undir með jólastressinu? Langar þig að lesa um forboðna ást á milli einmana prinsessu og prins sem skiptir um ham? Þá erum við með svarið fyrir þig.
Feathers So Vicious hefur allt þetta og meira til. En við vörum þig við. Hún er myrk. Og fer með þig á staði sem þú vissir ekki að þig langaði að fara á. En þú munt ekki sjá eftir því. Vonandi...Kannski.
ATH þessi þáttur inniheldur lýsingar á kynferðislegu ofbeldi, sem gæti verið óþægilegt fyrir einhverja hlustendur.
Vampírur, vampírur og meiri vampírur. Þáttur 8 í Blautum blaðsíðum fjallar um vampíru heim Carrisu Broadbent og inniheldur ja, vampírur, lífshættulega stríðsleika, stríð og guða erjur.
Við kynnumst Oraya, Raihn, Vincent og fleirum í þessu æsispennandi duology þar sem forboðin ást, galdrar og guðir mætast og ekki allir labba heilir frá þeim fundi.
Vorum við búnar að nefna að bækurnar fjalla um vampírur?
ATH þátturinn inniheldur grafískar lýsingar á kynferðislegum senum og mikið af spoilerum.
Þangað til næst!
Töfra skógur, forboðnar tilfinningar og nöfn sem við getum ekki borið fram.
Í 7. þætti Blautra blaðsíðna sökkvum við dýpra inn í heim The Eating Woods með bókinnni Eldritch — þar sem Zevander og Mayvith glíma áfram við Cadavros og gömul leyndamál koma upp á yfirborðið.
Eldritch er 2. bókin í seríunni og við höfum beðið eftir henni með mikilli eftirvæntingu!
ATH þessi þáttur inniheldur efni sem gæti framkallað ónotatilfinningar hjá fólki, þar sem rætt er um kynferðislegt ofbeldi.
Þátturinn inniheldur einnig spoilera og gróft orðalag.
Nýr skuggapabbi in the mix?? Já takk. Hlustaðu með þegar við köfum niður í hinn myrka heim Anathemu eftir Keri Lake, þar sem skrítin skrímsli fara á stjá og nornir og drekar berjast hlið við hlið. Það skemmir ekki fyrir að ein af höfuðpersónum bókarinnar, Zevander er vægast sagt sjóðheitur.
ATH þessi þáttur inniheldur efni sem gæti framkallað ónotatilfinningar hjá fólki þar sem rætt er um kynferðislegt ofbeldi.
Þátturinn inniheldur einnig spoilera og gróft orðalag.
Bláir geimveru menn, heitur feldur og barátta upp á líf og dauða? Ef þetta hljómar eins og eitthvað fyrir þig, smelltu þá 5. þætti Blautra blaðsíðna í gang og komdu með okkur í þessa óvenjulegu vegferð þegar við kynnumst Vektal og Georgie á ísplánetu mörgum ljósárum frá jörðu.
ATH hlaðvarpið inniheldur grafíska lýsingar og spoilera.
Trigger warning: kynferðislegur ásetningur án samþykkis.
4. þáttur Blautra blaðsíðna fer yfir byrjunina á hinni víðfrægu bókaseríu Throne of Glass eftir Sara J. Maas.
Í þættinum hittum við Celeana, Arobyn, Dorian, Kálið og fleiri góða karaktera, RDG er á sínum stað og við kynnum til leiks næstu bók sem, að öllum líkindum, kemur vel á óvart.
Komið með okkur í þetta ferðalag þar sem við flettum, skvettum og skemmtum okkur saman.
3.þáttur Blautra Blaðsíðna fjallar um bókina Onyx storm, 3.bókina í the Empyrean series, einnig þekkt sem Fourth wing.
Í þættinum fara Bryndís og María yfir helstu kenningar hingað til og hvað muni gerast í næstu bókum, og fara aðeins út fyrir ramman í fasta liðnum Ríða-drepa-giftast.
Komið með og flettið, skvettið og skemmtið ykkur með okkur þegar við köfum niður í drekakynlíf, skuggapabba og allt þar á milli.
ATH þátturinn inniheldur spoilera, kynferðistlegt orðalag og blótsyrði.
From the publisher's feed