Bodkastið

Bodkastið

By Bodkastið - Líkamsvirðingarvænt hlaðvarpSociety & CultureHealth & FitnessMental HealthEducation
Download on the App Store

Bodkastið episodes

  • Líkamsmyndar - námskeið - 1. skref

    Líkamsímynd - Námskeið
    Þetta er óhefðbundinn Bodkast þáttur. 
    Hér verður farið í fyrsta skrefið á líkamsmyndarnámskeiðinu sem einnig má finna á Youtube. Fyrst er líkamsmyndin þín kortlögð þar sem þú svarar nokkrum spurningum. 

    Námskeiðið er í þremur skrefum og gott að taka pásu eftir hvert skref og skrá niður pælingar og spurningar
    1. skrefið - Kortleggja líkamsmyndina
    2. skrefið - Hvað mótar líkamsmyndina
    3. skrefið - Leiðir til að efla jákvæða líkamsmynd



    18 min
  • #17 - Megrunarvítahringurinn og að öðlast heilbrigt samband við mat

    Í 17. þætti Bodkastsins spjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk við Ásdísi Ingu sem hefur kynnt sér hugmyndir um intuative eating (að borða í núvitund) og að öðlast heilbrigt samband við mat. 
    Ásdís Inga er einkaþjálfari og félagsráðgjafanemi. Hún kynntist hugmyndum um intuative eating þegar hún var sjálf búin að eiga í óheilbrigðu sambandi við mat í langan tíma og búin að þróa með sér lotugræðgi (bulimia). Hún heldur úti Instagram reikningnum Healthisnotasize þar sem hún fjallar um alls konar líkamsvirðingartengd mál. 
    Í þættinum er einnig fjallað um megrunarvítahringinn, megrunarmenninguna, desember mataræðið og áramótaheit. 

    46 min
  • #15 - Veikindi og líkamsímynd

    Í þessum fimmtánda þætti af Bodkastinu fáum við til okkar góðan gest, Hlín Rafnsdóttur. Hlín hefur gengið í gegnum erfið veikindi og hefur starfað fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein. Við spjöllum um áhrif líkamlegra veikinda á líkamsímyndina, þær breytingar sem verða á líkamanum, útlitslegar sem og aðrar breytingar.  Einnig  förum við í nokkur ráð til að efla líkamsímyndina og sjálfssamkennd. 

    53 min
  • #14 - Covid og líkamsvirðing

    Í þessum fjórtánda þætti af Bodkastinu fjalla Elva Björk og Sólrún Ósk um Covid, ástandið í samfélaginu og áhrif þess á líkamsmynd og líðan. Þær spjalla um Covid kílóin frægu, fjarvinnu, kyrrsetuna og andlitsmyndir á Zoomfundum. 

    29 min
  • #13 - Frægt fólk og líkamsvirðing

    Í þessum þrettánda þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um fræga fólkið og áhrif þeirra á líkamsmynd og líðan. 
    Þær velta fyrir sér áhrifum útlitstengdra frétta á sjálfsmynd og líkamsmynd og þess að dýrka og elska fræga einstaklinga.


    32 min
  • #11 - Hárplokk, húðkropp og líkamsskynjunarröskun

    Í þessum ellefta þætti af Bodkastinu fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamstengdarraskanir sem eru nokkuð algengar en ekki vel þekktar, hárplokkunaráráttu eða (trichotillomania) og húðkroppunaráráttu (skin picking disorder), líkamsskynjunarröskun (body dysmorphic disorder) og önnur líkamstengd vandamál. 

    45 min
  • #10 - Líkamsmynd og líðan eftir meðgöngu

    Í þessum tíunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd eftir meðgöngu. Þær segja frá rannsókn sem þær framkvæmdu og fengu 500 svör og reynslusögur frá nýbökuðum mæðrum. Þær fjalla um 6 mánaða dýfuna í líkamsmynd, of litlu gallabuxurnar, þakklæti til líkamans og margt fleira. 

    40 min
  • #9 - Líkamsmynd og kynlíf eftir meðgöngu

    Í þessum níunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd eftir meðgöngu og áhrif líkamsmyndarinnar á kynlíf. Kynfræðingurinn og snillingurinn Indíana Rós mætir aftur í þáttinn og spjallar um kynlíf og pælingar um kynlíf eftir meðgöngu. 

    31 min

About Bodkastið

From the publisher's feed

Bodkastið - Líkamsvirðingarvænt hlaðvarp þar sem líkamsvirðingarkonurnar Elva Björk Ágústsdóttir og Sólrún Ósk Lárusdóttir fjalla um ýmis málefni sem tengjast líkamsmynd, fitufordómum og…