
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum áttunda Bodkast þætti fjalla þær Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsmynd á meðgöngu. Hefur meðganga áhrif á líkamsmyndina? Eru verðandi mæður almennt sáttari með eigið útlit en fyrir meðgöngu? Leyfilega bumban....hvað er það? Er óléttur líkami sýningadýr eða almannaeign? Af hverju vilja allir strjúka óléttubumbum?
Í þessum sjöunda Bodkast þætti fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsvirðingu og líkamsmynd í tengslum við ástarlífið og deitmenninguna. Hvernig er að vera á Tinder? Hvaða áhrif hefur slæm líkamsmynd á tilhugalífið og ástarsambönd? Skiptir útlit miklu máli? Hvernig hljómar Jennifer Aniston kenningin?
Í þessum sjötta Bodkasta þætti fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um teiknimyndir og annað barnaefni. Hvaða skilaboð fá börn frá teiknimyndum? Má finna neikvæðar steríótýpur og jafnvel fitufordóma í barnaefni? Af hverju mátti Klói Kókómjólk ekki bara vera áfram krúttlegur kisi og hvað er málið með fitubrandarana í Peppu Pig?
Í þessum babl þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um líkamsvirðingar-lífið undanfarna daga, hreyfingu, pabba líkamann hans Zac Efron, fyrirsætuna Isold Halldórudóttur, Mik Zazon og fitufordóma og steríótýpur í sjónvarpi.
Í fjórða þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um áhrif líkamsmyndar á kynlíf. Einnig fá þær til sín fyrsta gest þáttarins kynfræðinginn Indíönu Rós.
Í þessum þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um fegurðarviðmið eða beauty ideals í gegnum tíðina. Hvernig viðmiðin hafa breyst og hverjar þeirra fyrirmyndir voru í æsku
Í þessum þætti af Bodkastinu fjalla líkamsvirðingarkonurnar Sólrún Ósk og Elva Björk um slæma líkamsmynd. Þær ræða um ólíka þætti líkamsmyndar, áhrif neikvæðrar líkamsmyndar og mótunarþætti. Þær segja frá hjálplegum og áhugaverðum líkamsmyndar ráðum sem þær hafa fengið í gegnum tíðina.
1. Þáttur - Kynning -
Bodkastið er hlaðvarp þar sem Sólrún Ósk og Elva Björk fjalla um ýmis líkamsvirðingatengd málefni. Í þessum fyrsta þætti fara þær út um víðan völl og fjalla til dæmis um líkamsvirðingu, fitufordóma í teiknimyndum, jákvæða líkamsmynd og margt margt fleira.
From the publisher's feed