
Sign up to save your podcasts
Or


Hvers vegna er Vesturbærinn ólöglegur? Hvaða áhrif hefur nærumhverfi fólks á andlega líðan? Hvernig hljóðar orð Guðs í Bændablaðinu? Er þráðurinn í Sósíalistum stuttur? Er réttlætanlegt að verja 160 milljónum í nýja selalaug?
Seldi borgin lífsgæði til að fegra ársreikning? Klúðraði Friðjón uppeldinu? Á að einkavæða byggingaeftirlit? Hvernig bætum við stöðu grunnskólanna?
Hvers vegna er rekstur borgarinnar ósjálfbær? Hvernig hljóða hagræðingartillögur borgarbúa? Hvort hugnast Friðjóni betur að vinna í flæði eða skipulagi? Er eðlilegt að hafa einn faðm á milli húsa? Hvaða áhrif hafa kæruheimildir á stjörnuspá Bændablaðsins?
Hvaða áhrif hefur þéttingarstefnan á atvinnulíf í borginni? Hvernig mætum við ólíkum þörfum í skólakerfinu? Hvort velur Sandra skautasvell eða frisbígolf? Er tónlistarnám aðeins aðgengilegt börnum hinna efnameiri? Kláraði Friðjón Dubai súkkulaðið?
Verða leikskólabörn framtíðar sótt með drónum? Hverjar verða þarfir borgarbúa næstu áratugi? Er framtíðin í samgöngum neðanjarðar fremur en ofanjarðar? Væri gott að geta sótt matvörur, sendingar og skyrtur í hreinsun, á sama stað, í sjálfsafgreiðslu?
Hvers vegna leggjumst við gegn þéttingaráformum í Grafarvogi? Af hverju þarf að auka vægi list- og verkgreina í grunnskólum? Er æskilegt að byggja bara niðurgreitt húsnæði? Hvaða breytingum hefur fylgi Sjálfstæðisflokks tekið í hverfum borgarinnar?
Hvaða tækifæri felast í aukinni jarðgangagerð í Reykjavík? Hvernig sköpum við heilbrigðan húsnæðismarkað? Af hverju líður vinstri mönnum best illa? Hvers vegna verðskuldaði Friðjón ekki súkkulaðið? Ætlar aðför meirihlutans að sjálfstæðum skólum engan endi að taka?
Hvers vegna vilja vinstri menn banna áfengisveitingar á íþróttaleikjum fullorðinna? Búa sjálfstæðismenn leigulaust í hugarfylgsnum borgarstjóra? Koma vinstri kreddur í veg fyrir stuðning við sjálfstætt starfandi skóla? Ætti borgin að semja við veitingamenn í miðborginni í stað þess að reka mötuneyti?
Hvers vegna hefur ofþyngd barna á grunnskólaaldri aukist um 50% síðastliðinn áratug? Eru skólamáltíðir í borginni í samræmi við nýjar ráðleggingar Landlæknis um matarræði? Munu átök í Sósíalistaflokknum leiða til fylgisauka fyrir Vinstri græn? Hverju vill fólk helst breyta við Reykjavík? Ætla oddvitar meirihlutans að stofna neyðarsjóð fjölskyldunnar?
Er raunhæft að sinna hálfu aukastarfi samhliða starfi borgarstjóra? Mun Friðjón leggjast í selalaugina? Eru sveitarfélögin í landinu forystulaus? Á að bjóða út rekstur Fjölskyldu- og Húsdýragarðsins? Sýna landsmenn æskilega hegðun uppi í bústað? Hvaða týpa er Reykjavíkurborg?
From the publisher's feed