Borgin

Borgin

By Hildur og FriðjónNewsPolitics
Download on the App Store

Borgin episodes

  • Borgin - Landsfundur XD (dagur 3)

    Hvaða verkefni bíða Guðrúnar Hafsteinsdóttur? Hvaða áhrif mun það hafa að enginn af höfuðborgarsvæðinu tilheyrir nú forystu flokksins? Mun Guðrún nálgast verkefnið eins og Kristrún eða Davíð? Um hvað voru Hildur og Geir Waage ósammála? Verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins kosinn opinni kosningu?

    33 min
  • Borgin - Landsfundur XD (dagur 2)

    Hvernig voru ræður frambjóðenda? Hvaða verkefni bíða nýs formanns? Hverju var hent í ruslið á salerninu? Fá sveitarstjórnamál það pláss sem þau eiga skilið? Hvers vegna gripu þáttastjórnendur í vasaklútinn?

    32 min
  • Borgin - Landsfundur XD (dagur 1)

    Hver skældi undir setningarræðu Bjarna Benediktssonar? Af hverju svaf Friðjón á sófa foreldra sinna 39 ára gamall? Verður tillaga Söndru um rafrænar kosningar samþykkt? Ber fráfarandi formaður ábyrgð á því að næsti formaður verður kona? Hvað er eiginlega Reykjavík Lab? 

    31 min
  • Borgin - 25. febrúar 2025

    Er 100 milljóna króna selalaug eðlilegt forgangsmál nýs meirihluta? Mun Sósíalistaflokkurinn stöðva sölu Perlunnar? Hvernig er skynsamlegt að bregðast við ofbeldismálum í grunnskólum borgarinnar? Hver greiðir að endingu reikninginn fyrir óhagnaðardrifið húsnæði? Hvers vegna telur Friðjón nýjan meirihluta minna á nætur í Bangkok?

    1 hr 9 min
  • Borgin - 18. febrúar 2025

    Er eftirspurn eftir fimm flokka vinstri meirihluta í höfuðborginni? Verður Sanna næsti borgarstjóri? Er Flokkur fólksins að fórna málstaðnum fyrir hefndina? Verður Friðjón sannspár varðandi hvítu dragtirnar? Mun stefnubreyting Samfylkingar verða sóknarfæri fyrir Viðreisn?

    54 min
  • Borgin - 4. febrúar 2025

    Hvenær munu fleiri formannsframbjóðendur stíga fram? Hvers vegna raska tollamál næturró Friðjóns? Hvaða áhrif hefur hækkun gatnagerðargjalds á húsnæðisverð í borginni? Hvers vegna þarf að eyða óvissu um Reykjavíkurflugvöll? Endurspeglar landsfundur kjósendahóp Sjálfstæðisflokksins?

    57 min
  • Borgin - 28. janúar 2025

    Verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins krýndur eða kjörinn? Hvers vegna lét borgarstjóri sem græna gímaldið kæmi honum að óvörum? Hvað má lesa í mætingu á framboðsfundi? Er menningarstríð í borginni? Hvaða sagnfræði býður Friðjón uppá þessa vikuna?

    57 min
  • Borgin - 21. janúar 2025

    Hverjir gefa kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins? Hyggst Einar Þorsteinsson nota ostaskerann á Öskjuhlíðina?Hvernig lækkum við þröskuldinn og nútímavæðum Sjálfstæðiflokkinn? Ætti að leggja ritaraembættið niður? Af hverju kláraði Friðjón súkkulaðið?

    55 min
  • Borgin - 14. janúar 2025

    Ætti formaður Sjálfstæðisflokksins að vera kjörinn í opinni kosningu allra flokksmanna? Hvort þykir Einari Þorsteinssyni vænna um tréin í Öskjuhlíð eða Reykjavíkurflugvöll? Hvers vegna er Friðjón svona þjófahræddur? Ætti Sjálfstæðisflokkurinn að snúa sér að rafrænum kosningum? Hvers vegna eru 850 borgarstarfsmenn veikir daglega?

    1 hr 7 min
  • Borgin - 7. janúar 2025

    Þarf næsti formaður Sjálfstæðisflokksins að koma úr röðum þingmanna? Er græna vöruskemman að Álfabakka hluti af græna plani meirihlutans? Hvers vegna er áramótaheit Hildar betra en Friðjóns? Stafar bráð hætta af fyrirtækjareknum leikskólum? Alls ekki!

    1 hr 15 min

About Borgin

From the publisher's feed

Hlaðvarp um borgarmál