
Sign up to save your podcasts
Or


Hvernig geta stúdentar leyst umdeilt skipulagsmál að Birkimel? Hvaða áhrif hafa einhæfar lausnir meirihlutans í leikskólamálum á biðlistavandann? Hvers vegna þarf Friðjón að hætta að gefa öndunum brauð? Hvernig sköpum við sátt um bættar almenningssamgöngur?
Hjól atvinnulífs og borgarkerfisins eru að snúast af stað og Borgin hljómar eftir hlé. Verður "Love is Blind - Sweden" fyrirmynd í borgarskipulagi? Er Þétting það sama og þéttting? Heyrðu heitstrengingar um gagnsæi, úttekir og áskoranir.
Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.
Er best að græða á daginn og grilla á kvöldin? Er pólitíkin að drepa fólk úr leiðindum? Hver fylgist með kosningum til efri deildar japanska þingsins? Geta Friðjón og Sandra staðið undir væntingum? Misstu ekki af næsta þætti.
Sandra ræðir við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Þær ræða nýja greiningu SI á uppbyggingu íbúða. Hvað geta sveitarfélög gert til þess að bregðast við samdrætti í húsnæðisuppbyggingu? Hversu miklu hagræði má ná fram með einföldun ferla og auknu gagnsæi?
Stafar sérstök hætta af hjartalaga umferðarljósum? Hvenær telur Samfylking sig hafa innheimt næga skatta af borgarbúum? Er stjórnlyndi að aukast í borgarkerfinu? Hverjir óttast helst bjórdrykkju á íþróttakappleikjum? Hversu margar fjölskyldur verða fyrir áhrifum af mannekluvanda leikskólanna?
Hvers vegna er flóknara að opna veitingahús í Reykjavík en London? Ættum við að bjóða Happy Hour á bílastæðum í miðborginni? Felst tækifæri í því að einkavæða veðurspána? Hvað er að gerast í miðborginni í sumar? Gestir þáttarins eru veitingamennirnir Róbert Aron Magnússon og Jakob Einar Jakobsson.
Hvers vegna fær íslenski fáninn ekki að blakta við hún hjá Ráðhúsi Reykjavíkur daglega? Þurfa veitingamenn næst að setja hjálma og björgunarvesti á viðskiptavini? Hvers vegna hefur Bændablaðið svo mikinn áhuga á fjármálum þáttarstjórnenda? Ættu leikskólabyggingar framtíðarinnar að vera staðlaðar í auknum mæli?
Sumarið er komið og sólin skín. Hvað er betra en að hlusta á spjall um skipulag á golfvelli, fasteignaskatta og skólamál. Afmælisvikur stjórnlyndra stjórnmálamanna og öfgahægrið á óvænt strandhögg í borgarstjórn.
Hvers vegna hefur fólk hafnað Samfylkingarleiðinni í húsnæðismálum? Hver ber ábyrgð á fyrirhugaðri uppbyggingu að Vesturbugt? Af hverju drekkur Sandra kalt kaffi? Hvernig er skynsamlegt að viðhalda Heiðmörk sem útivistarsvæði til framtíðar? Hvers vegna vakir Friðjón um nætur?
Höfuðlaus her við míkurnar - hefur hallarbyltingin í Bolholti náð upp á Háaleitisbraut? Hvað er að gerast í lýðræðismálum borgarinnar og af hverju er Perlan seld með 13 ára seljandaláni Þetta og margt fleira í hlaðvarpi dagsins.
From the publisher's feed