Mannlegi þátturinn 12.febrúar 2018
Umsjón í dag Guðrún Gunnarsdóttir og Lísa Pálsdóttir
Við segjum frá Námskeiði sem er ætlað öllum þeim sem vilja fræðast um breytingaskeið kvenna og leiðir til að draga úr einkennum og heilsufarskvillum sem geta fylgt í kjölfarið.
Á námskeiðinu er td. fjallað um fæðu og þarmaflóru og farið er yfir hvernig röskun á þessari mikilvægu flóru getur stuðlað að hitakófum og svitaköstum og haft áhrif á svefn og andlega líðan. Birna G. Ásbjörnsdóttir kemur til okkar til að segja okkur nánar frá en hún er með meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá háskólanum í Surrey, og hefur einnig lokið námi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum frá Oxford.
Við heyrum viðtalsbrot úr safni Útvarpsins frá árinu 1957, úr þættinum Á ferð og flugi . Í þeim þætti ræddi Gunnar Scram við Jóhannes S Kjarval og þeir ganga um nýopnaða myndlistarsýningu Jóhannesar í leikfimisal Jóns Þorsteinssonar Lindargötu 7. Þeir koma víða við í spjallinu, tala um skútusjómennsku, kollega í málarastétt,ungu málarana og abstrakt list. .
Og lesandi vikunnar er Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona