Sérfræðingur þáttarins í dag var Dr. Erla Björnsdóttir, svefnsérfræðingur. Erla rannsakaði svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn í doktorsnámi sínu. Hún hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsfólki í Evrópu og Bandaríkjunum. Við ræddum við hana í fyrri hlutanum um hennar störf í svefnráðgjöf og meðferð. Svo í seinni hluta þáttarins svaraði Erla spurningum sem hlustendur hafa sent inn í netfang þáttarins,
[email protected]. Spurningarnar í dag fjölluðu t.d. um áhrif skjánotkunar á svefn, nikótínneysla, leiðréttingu klukkunnar, svefnlyf, tíð þvaglát á næturna, flóaða mjólk og fleira.