Sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Dr. Janus Guðlaugsson. Hann rekur Janus heilsueflingu sem er ráðgjafa- og þjónustufyrirtæki sem vinnur að bættri heilsu og betri lífsgæðum eldri borgara. Þar nýtir hann niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar, Hver er möguleikinn á að öðlast bætta heilsu og betri hreyfigetu þrátt fyrir hækkandi aldur? Og hvað þýðir heilsuefling í raun og veru? Janus mun fræddi okkur um það og sín störf og rannsóknir í fyrri hlutar þáttarins.
Og svo í seinni hlutanum svaraði Janus spurningum sem hlustendur hafa sent inn í póstfang þáttarins,
[email protected]. Spurningarnar snéru að styrktaræfingum, mataræði, kraftlyftingum, sjósund, næringardrykkjum, blóðþrýstingi o.fl.