Draumaliðið

Draumaliðið

By Jói SkúliSports
Download on the App Store

Draumaliðið episodes

  • Svona var Ísland '00-'02: Gísli á Napster og Atli á Parken
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
    The Rise and fall of Einar Bárðarson. Ísland á HM innistæðulaust chantað í stúkunni á sama tíma og virtustu blaðamenn DV skrifuðu greinar sem hefðu helst átt heima á folk.is svæðinu þeirra. Gísli Marteinn gjörsamlega elskaði að brjóta á hugverkaréttindum og Eyjólfur Sverris raðaði inn mörkum. Svona var Ísland.
    2 hr 33 min
  • Aron Einar Gunnarsson
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR -DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 Ráðgjöf og bókhald
    Aron Einar valdi Draumalið skipað af bestu leikmönnum sem hann spilaði með frá tíma sínum í Þór, AZ Alkmaar, Coventry, Cardiff og Al-Arabi. Frá Louis van Gaal til Neil Warnock og frá Einari Sigþórssyni, bróður Kött Grá Pjé, til Rafinha Alcantara. Allt sviðið var skoðað.
    1 hr 24 min
  • Svona var Ísland ft. Rúnar Kristinsson (1986-2000)
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF
    Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn).
    Enduðum þáttinn á að fá fyrri viðmælendur til þess að fara yfir að þeirra mati bestu leikmennina sem þeir spiluðu með í landsliðinu á þessum tíma. Því miður fundum við ekki símtölin við Hörð Magnússon og Pétur Ormslev. Formleg kvörtun hefur verið lögð inn hjá tölvudeild ónefnds tölvufyrirtækis.
    1 hr 49 min
  • Svona var Ísland '98-'00: Elsku drengurinn
    Það styttist í aldamót og þjóðin fer að taka sénsa. Þorfinnur Ómarsson og lærisveinar hans í Kvikmyndasjóði byrja að veita Edduverðlaun og leikmenn keppast við að hætta að leika fyrir íslenska landsliðið. Fórum yfir það þegar DV hrútskýrði fyrir þjóðinni hverjir væru gáfuðustu Íslendingarnar og svo var nóg að gera hjá Ingólfi Hannessyni. Á meðan er Guðjón að smíða eitthvað skrímsli og nei þá erum við ekki að meina stúkurnar sem settar voru fyrir aftan mörkin fyrir leikinn á móti Frökkum, enda voru þær leigðar frá Svíþjóð #ÞærSænsku. Tvö stig skilin eftir í Jerevan, barningur við Barthez, rýtingur frá Rebrov, eitt stykki Ingólfur kampakátur Karpin og give it Kio Briggsy til the end of the season. "Þetta er liðið okkar". Svona var Ísland '98-'00
    Viðmælendur:
    Pétur Hafliði Marteinsson aka Social Pete
    Steinar Dagur Adolfsson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Akraness og tengiliður gerður að hafsent.
    Rikki Daða og Rúnar Kristins (viðtal fengið frá www.fótbolti.net), sérfræðingar í málefnum Íslands og Frakklands
    Þórður Guðjónsson, áhugamaður um ferðatilhaganir
    Negliði á Thule og félaga sögum og leiðréttingum, ekki veitir af.
    3 hr 19 min
  • Svona var Ísland '96-'98: Enter the Dragon
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
    Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Changing of the guards, farewell to legends og svo gerðum við upp talsetningar á teiknimyndum á 10. áratugnum. Svona var Ísland 96-98.
    Dæliði inn í Thule hornið!
    3 hr 3 min
  • Svona var Ísland '94-'96: Ræktun og Roland litli Macintosh
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
    Benjamin, the Dove kom út og veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur barðist í bökkum við að fullnægja kúnnum sínum á þá vegu sem þeir ætluðu. Á sama tíma hafa skin og skúrir aldrei komið og farið jafn oft hjá einum manni og Ásgeiri Elíassyni þrátt fyrir metfjölda af tengiliðum í bakvörðum og Þorgeir Ástvaldsson með myndavélina í andlitinu á honum allan leikinn fyrir hönd VISAsport. Við krufðum það hvernig POX kom til landsins og viljum fá að vita meira um skemmtistaðina Síbería og Ingólfskaffi. Ásgeir lét undan þrýstingi og setti lyfjafræðing í vörnina eftir nákvæmar skallaæfingar. Under the Solna Sun þar sem Ravelli blindaðist. Svona var Ísland 94'96.
    Viðmælendur: Ólafur Adolfsson, skallamaður.
    Dæliði í Thule leiðréttingahornið, takk!
    3 hr 25 min
  • Kristján Finnbogason
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
    Kristján Finnbogason er næst sigursælasti leikmaður íslenskrar nútímaknattspyrnu með 8 Íslandsmeistaratitla með skammstöfunarliðunum ÍA, KR og FH yfir feril sem teygði sig yfir fjóra áratugi frá 1987 til 2016. Draumalið frá manni sem spilaði með báðum risum íslenskrar knattspyrnu á 10. áratugnum. Hverjir fá sénsinn og hverjir eru settir á bekkinn?
    1 hr 29 min
  • Svona Var Ísland '92-'94: Það eru töfrar
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
    Þjóðin eignaðist að öðrum ólöstuðum mesta Íslandsvin fyrr og síðar þegar georgískur málvísindamaður tók ástfóstri við Ísland og komst með krókaleiðum og Guðna Th. til Íslands. Á sama tíma er Ásgeir Elíasson setjandi tengiliði í bakvarðastöðurnar og prófandi allar útfærslur sem til eru í leit Eggerts Magnússonar að sæti á Heimsmeistaramótinu 1994 í Bandaríkjunum. Það voru ferskir vindar, sem þó stundum blésu á móti okkur. Það var maður sem vildi berbrjósta þjónustukonur á pizzastað. Það voru súpergrúppur og það voru nýliðar. En fyrst og síðast, það voru töfrar. Svona var Ísland 1992-1994.
    Dritiði á okkur leiðréttingum.
    Viðmælendur: Hörður Magnússon, kóngur úr Hafnafirði.
    3 hr 8 min
  • Svona var Ísland '90-'92: Til hvers?
    LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
    Úr þýskum aga í sænskan toppfótbolta(?). Eggert mætti, Davíð fær lyklana að flokknum og í Vesturbænum er alls konar vitleysisgangur í boði. Það var sárt að sakna en þjóðin flykktist á bakvið eftirmanninn þegar Spánverjar voru bakaðir. Svo fór Diddi Fiðla til London. Svona var Ísland '90-92.
    3 hr
  • Svona var Ísland '88-'90: Það sem næstum sást
    Jóhannes litli Páll kíkti til landsins og Hjammi þreif bílinn hans. Sigi Held fékk a month of friendlies í ágúst en ekkert meir eftir það. Goðsögn kvaddi og handhafar forsetavalds kíktu í ríkið. Bjórinn fékk að flæða á ný, Valgeir Guðjóns ákvað að ganga heim á öllum vígsstöðum en fyrst og síðast setti geðþekkur Akureyringur 85 þúsund sovéska áhangendur hljóða á Lenínvellinum.
    Viðmælendur: Ólafur Helgi Kristjánsson, prófessor, Pétur Úlfar Ormslev, tía, og Halldór Ómar Áskelsson, Sovétbani.
    3 hr 10 min

About Draumaliðið

From the publisher's feed

Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði https://www.facebook.com/Draumali%C3%B0i%C3%B0-104064991157227/?modal=admin_todo_tour

Best of Draumaliðið

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1: Svona var sumarið 1998
    2 hr 26 min
  2. Number 2: Svona var sumarið 1997
    2 hr 32 min
  3. Number 3: Svona var sumarið 1996
    2 hr 18 min

More shows like Draumaliðið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

11 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Tveggja Turna Tal by Tveggja Turnatal

Tveggja Turna Tal

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners