Draumaliðið

Draumaliðið

By Jói SkúliSports
Download on the App Store

Draumaliðið episodes

  • Svona var sumarið 2012
    LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR
    Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? Breskt raunveruleikasjónvarp átti sér stað á Akranesi, Stjarnan sóttu danskan dreng í Himalaya fjöllin og Lee litli Bucheid hefur ekki sagt sitt síðasta. Svona var sumarið 2012.
    Viðmælendur:
    Alexander Scholz
    Baldur Sigurðsson
    Jón Daði Böðvarsson
    4 hr 37 min
  • Svona voru viðtölin 2011 Hidden Bonus Track
    Viðtöl í fullri lengd vegna sumarsins 2011
    Pétur Georg Markan fór yfir ástandið í Víkinni ásamt því að svara spurningum um Power of Love og þrennuna í Efra-Breiðholtinu.
    Atli Sigurjónsson ræddi við okkur um gullkynslóð Þórsara, byr undir báða vængi og bakpokaferðalag sitt með Pall Gísla til Hollands á miðju tímabili.
    Kjartan Henry fór yfir hina ýmsu hluti á mögnuðu sumri KRinga, ruglaðist reyndar á Gary Martin og Gauja Baldvins en það kemur fyrir á bestu bæjum.
    32 min
  • Svona var sumarið 2011
    LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR
    Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti leikmaður mótsins? Ætli það verði ekki einhver KRingurinn? Er þetta eitthvað sem er hægt að halda utan um í Excel skjali eða er kannski bara best að vita þetta sjálfur? Hvað svo sem gerist þá ætti þessi þáttur að veita ykkur byr undir báða vængi, hvort sem þið eruð andskotans karlmenn eða andskotans konur. Svona var sumarið 2011.
    4 hr 22 min
  • Svona voru viðtölin 2010 - HIDDEN BONUS TRACK
    Full length viðtölin við prófessor Ólaf Helga Kristjánsson, Viðar Örn Kjartansson og Arnar Svein Geirsson.
    Prófessorinn fór yfir allt milli himins og jarðar sem náði ekki að troða öllu í endanlega útgáfu þáttarins Svona var sumarið 2010 en einfaldlega verður að fara í loftið, eins og til að mynda aðdraganda og örlög fjólubláu peysunnar. Of gott material til að henda því í recycle bin og sömuleiðis allt frá Arnari Sveini og VÖK.
    49 min
  • Svona var sumarið 2010
    LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR
    Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Beckham er í raun og veru hinn íslenski Rory Delap. Fórum yfir hnefasamlokuna sem var matreidd fyrir Jóa og fengum play-by-play greiningu á seasoninu frá Prófessornum sem við stóðum með Hlið við Hlið og Keyrðumettígang ásamt því að við heyrðum samsæriskenningar og magnaðar sögur frá unglingi sem elti hypeið á Selfoss en endaði á að grípa í skottið á vonbrigðum. Svona var sumarið 2010.
    Viðmælendur:
    Ólafur Kristjánsson, prófessor.
    Arnar Sveinn Geirsson, sérfræðingur í löngum innköstum.
    Viðar Örn Kjartansson, einn markahæsti Íslendingurinn í atvinnumennsku.
    4 hr 31 min
  • Svona var sumarið 2009
    Hér varð hrun! Myntkörfulán. Icesave. Guð blessi Ísland. Lehman brothers, Hvanndals brothers og Tillen brothers áttu misjöfnu gengi að fagna en hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar? Allir og ömmur þeirra voru sendir heim, samningum var rift en í gömlum kústaskáp fannst rykfallna bókin YOUTH by Kaggi Más sem prófessorinn reif blaðsíðu úr. Yohanna kom sá og sigraði enn eitt silfrið í sögu þjóðar og Valsmenn voru staðráðnir í að láta efnahagsástand ekki hafa áhrif á leikmannahópinn sinn. Risinn var þó álíka illviðráðanlegur og Bubbi Morthens var úrillur þegar hann vaknaði við vondan draum og ákvað að rebranda sig. Svona var sumarið 2009
    Viðmælendur:
    Matthías Guðmundsson, fórnarlamb camphylobacteriu
    Ólafur Páll Snorrason, sonur heiðursforseta Fjölnis.
    Halldór Orri Björnsson, lenti í það að ruðst var inn í tjaldið hans á þjóðhátíð af snargeðveikum handboltamanni sem vildi fá eiginhandaráritun.
    3 hr 46 min
  • Svona var sumarið 2008
    LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSIONCRAFTBAR - DOMINO’S
    Við höldum áfram að eyða umfram og óveðursskýið er byrjað að myndast en samt hendum við í biluðustu Eurovision undankeppni allra tíma. Silfur náðist í Peking um miðja nótt eftir djamm á Hverfisbarnum og Heimir Guðjóns fór í nostalgíukast til að styrkja liðið sitt. Kristján Guðmunds bjó til nýjan Bjargvætt í Keflavík en myndi það duga? Logi Ólafs gaf Rúnari Kristins rétta formúlu fyrir Íslandsmeistaratitli en þekkti Rúnar allar breyturnar? Changing of the guards, we’ve been here before, pallaleikur og Höskuldur Eiríksson að snúast í hringi í kringum Ashley litla Young. Svona var sumarið 2008.
    Viðmælendur:
    Simun Eiler Samuelsen, besti færeyski leikmaður efstu deildar frá upphafi.
    Atli Viðar Björnsson, hýsti um stund Kristinn Björnsson, Hlíðamann ekki skíðamann, í fjölskylduhúsi sínu á Dalvík.
    4 hr 1 min
  • Svona var sumarið 2007
    LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION - DOMINO’S.
    Íslenska þjóðin hefur aldrei haft það jafn gott. Íslenskar Lúxussnekkjur voru lagðar við Thames, afmæli haldin á Jamaica og leikmenn keyptu sjálfa sig fyrir metfé í Landsbankadeildinni. FH voru með rosalegt lið og gott bakland eftir sigursæl ár, en í Miðbæ og Hlíðum var einhver ástríða að kvikna sem erfitt getur reynst að stöðva. Hundurinn Lúkas fór upp á fjall og Ellý Ármanns skrifaði kynlífsfantasíu um 16 ára starfsmann Garðlistar. Svona var sumarið 2017. 2017? nei nei, 2007.
    Viðmælendur:
    Sigurbjörn Hreiðarsson, kennari í Kópavogi.
    3 hr 49 min
  • Hörður Magnússon
    LENGJAN - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - THULE
    Hörður Magnússon vann þrjá gullskóa í röð árin 1989, 1990 og 1991. Það hafði enginn gert í að verða 30 ár og enginn hefur leikið eftir síðan.
    1 hr 34 min
  • Svona var sumarið 2006
    Það eru Magni-ficent hlutir að eiga sér stað í íslenska samfélaginu og þjóðin tekur ástfóstri við Gilby Clarke og Dave Navarro. Hetja yfirgefur Vesturbæinn og er staðráðinn í að kenna þeim lexíu og stjórnarmenn halda áfram að reyna að fella Börkinn. Splash TV og MySpace ryðja sér til rúms, Sigursteinn Gíslason semur við leikmann af lagernum hjá Eimskip. Óli Jó þarf að fara í hefilbekkinn og hlustendur þurfa að taka afstöðu og ákveða hvort þau séu B-hliðar fólk eða alætur á tónlist, takk.
    3 hr 41 min

About Draumaliðið

From the publisher's feed

Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði https://www.facebook.com/Draumali%C3%B0i%C3%B0-104064991157227/?modal=admin_todo_tour

Best of Draumaliðið

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1: Svona var sumarið 1998
    2 hr 26 min
  2. Number 2: Svona var sumarið 1997
    2 hr 32 min
  3. Number 3: Svona var sumarið 1996
    2 hr 18 min

More shows like Draumaliðið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

11 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Tveggja Turna Tal by Tveggja Turnatal

Tveggja Turna Tal

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners