Draumaliðið

Draumaliðið

By Jói SkúliSports
Download on the App Store

Draumaliðið episodes

  • Svona var sumarið 1998
    LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH
    Allir og ömmur þeirra fóru í atvinnumennsku eftir tímabilið 1997 en íslenska þjóðin samdi við félagsfælin háhyrning til að fylla í það skarð. Knattspyrnufólk landsins flykktist af Astró þegar handboltamenn fóru að gera sig gildandi þar og færðu sig yfir á Skuggabarinn. Íslandsvinurinn Louis Saha og Nicolas Anelka léku listir sínar á Akranesi, við gerðum ekkert í Evrópu og tveir ástsælustu feðgar þjóðarinnar kíktu á íslenska grasvelli.
    Viðmælendur:
    Magnús Orri Schram, hluti af hinni mögnuðu B. Schram ætt og fyrsti framkvæmdastjóri KR-sport.
    Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Bjargvætturinn 2.0 frá Keflavík.
    2 hr 26 min
  • Svona var sumarið 1997
    LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS
    Árið 1997 kynntist Melanie Brown Fjölni Þorgeirssyni, Geir Sveinsson var með minnstu hendur íslenska handboltalandsliðsins og Skítamórall gerðu einhver farsælu félagsskipti í íslenskri tónlistarsögu. Utan þess var allt í báli brand upp á Akranesi og í Frostaskjólinu en Keflvíkingar og Eyjamenn lifðu í undralandi goðsagnar sem hafði snúið heim annars vegar og sérfræðings í landsbyggðarþjálfun hins vegar.
    Viðmælendur:
    Þorsteinn Þorvaldsson, fyrrum sparisjóðsstjóri á Ólafsfirði og maðurinn á bakvið ævintýri Leifturs í efstu deild.
    Valdimar Kristófer Sigurðsson, lengi vel markahæsti leikmaður Íslandsmótsins og á að eiga styttu af sér í Borgarnesi.
    2 hr 32 min
  • Svona var sumarið 1996
    LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS
    Árið 1996 hóf Séð&Heyrt göngu sína, Sigurjón Kjartansson x Baltasar Kormákur collabið byrjaði með sýningunni Áfram Latibær og tímamóta risaeðlusýning var haldin í Kolaportinu. Hilmir snéri heim upp á Skaga og gerði allt til þess að halda Íslandsmeistaratitlinum frá Mordor eftir 28 ár af sársauka hjá KR sem voru komnir með nýjan Sauron í brúnna. Hajrudin Cardaklija varði síðan klikkað mörg víti.
    Viðmælendur:
    Gunnlaugur Jónsson, annar hluti tvíeykisins Gulli&Geiri og hafsent af Skaganum.
    Hilmar Björnsson, umdeildur hægri bakvörður/kantmaður KRinga og núverandi íþróttastjóri fréttadeildar RÚV.
    2 hr 18 min
  • Svona var sumarið 1995
    LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS
    Skaginn átti ekki bara besta fótboltalið landsins heldur fannst þar líka elsta KitchenAid vél Evrópu. Valsmenn ætluðu að kaupa sér lyklana að árangri FH undanfarin ár á leikmannamarkaðnum. Landsbyggðin upplifði sitt mesta blómaskeið í íslenskri knattspyrnu en allt saman blikknaði þetta í samanburði við mannlega harmleikinn sem heimsmeistaramótið í handbolta á Íslandi var.
    Viðmælendur:
    Víðir Sigurðsson, einn stofnenda Draumaliðsdeildar DV, fyrstu íslensku fantasy deildarinnar, og einn af íþróttafréttamönnunum sem sniðgekk Olgu Færseth sem íþróttamann ársins árið 1994.
    Arnar Gunnlaugsson, lenti í 2. sæti í 1á1 móti hollensku deildarinnar þar sem hann vann Philip Cocu og Gerald Sibon en tapaði fyrir Edgard Davids í úrslitaleik
    1 hr 52 min
  • Svona var sumarið 1994
    LENGJAN - DOMINO'S - THULE - BLUSH.IS
    SVIPTINGAR! Guðjón Þórðarson færir sig yfir í Vesturbæinn og reynir að taka allt Skagaliðið með sér. Hver var eini knattspyrnumaðurinn sem komst á lista yfir 25 bestu elskhuga landsins? Hvernig er hægt að vera yfirburðarleikmaður í deildinni 15 ára gamall? Fórum svo yfir ævarandi smánarblett íþróttafréttamanna vegna kjörs á íþróttamanni ársins fyrir árið 1994.
    Viðmælendur:
    Rúnar Kristinsson, mögulega besti leikmaður Íslandsmótsins sem aldrei varð Íslandsmeistari.
    1 hr 49 min
  • Svona var sumarið 1993
    Lengjan - Domino's - Thule - Blush.is
    Hvernig fóru Skagamenn að því að gera enn betur þrátt fyrir að missa tvo af sínum bestu leikmönnum? Hverjir voru raunverulega bestu skemmtistaðir landsins? Hvernig fóru Rage Against The Machine að því að gera FH að toppliði? Hvernig gerist það að einu börnin í heiminum fædd á árunum 1983-1995 sem þekkja teiknimyndina Prinsessan og Durtarnir séu frá Íslandi?
    Farið yfir sumarið 1993 í íslenskum fótbolta, tíðarandinn krufinn og reynt að komast að því hvað virkilega var að eiga sér stað innan sem utan íslenskra knattspyrnuvalla.
    Viðmælendur:
    Guðjón Þórðarson, geit.
    Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og drekkur frítt til dauðadags í Vestmannaeyjum fyrir að vera Bjargvætturinn
    1 hr 29 min
  • Svona var sumarið 1992
    Lengjan - Domino's - Thule - Blush.is
    Pele á Egilsstöðum, óstöðvandi tvíburar í fullkomnu valdajafnvægi og hassneysla hjá menningarelítu Akureyrar. Farið yfir sumarið 1992 í íslenskum fótbolta, tíðarandinn krufinn og reynt að komast að því hvað virkilega var að eiga sér stað innan sem utan íslenskra knattspyrnuvalla.
    Viðmælendur í þættinum:
    Guðmundur Hreiðarsson, fyrrum landsliðsmarkvörður og professional hand model.
    Eysteinn Húni Hauksson, miðjumaður í liði Hattar sem setti Íslandsmet í því að halda hreinu árið 1992.
    1 hr 37 min
  • Auðunn Blöndal
    LENGJAN - R3 RÁÐGJÖF (www.r3.is) - DOMINO'S - TUBORG - WHITEFOX OG SKRUF FJARÞJÁLFUN.IS - SESSION CRAFT BAR - SUIT UP REYKJAVÍK
    Auðunn Blöndal ætlaði að verða atvinnumaður í fótbolta þangað til hann áttaði sig á því að hann nennti því ekki alveg. Alvöru Draumalið úr grasrótinni af landsbyggðinni.
    45 min
  • Arnar Sveinn Geirsson
    Fyrrum unglingalandsliðsmaðurinn, Íslandsmeistarinn, forseti leikmannasamtakanna og pistlahöfundurinn Arnar Sveinn Geirsson gerði upp meistaraflokksferilinn sem hófst árið 2008 þegar Óskar Bjarni og Willum háðu hatramma deilu um örlög hans í íþróttum. Tveir klukkutímar af tandurhreinni íslensku.
    2 hr 12 min
  • Bjarni Jóhannsson
    LENGJAN - DOMINO'S - WHITE FOX OG SKRUF - FJARÞJÁLFUN.IS - TUBORG - SESSION CRAFT BAR - SUIT UP REYKJAVÍK
    Við Bjarni möluðum saman í tæplega 140 mínútur og náðum ekki einu sinni að fara yfir allt frá þjálfaraferlinum hans þegar hann valdi draumalið þeirra leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Þjálfaraferill sem spannar einhver 40 ár og lið frá öllum landshornum hjá sennilega leikjahæsta þjálfara Íslandsmótsins.
    2 hr 17 min

About Draumaliðið

From the publisher's feed

Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði https://www.facebook.com/Draumali%C3%B0i%C3%B0-104064991157227/?modal=admin_todo_tour

Best of Draumaliðið

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1: Svona var sumarið 1998
    2 hr 26 min
  2. Number 2: Svona var sumarið 1997
    2 hr 32 min
  3. Number 3: Svona var sumarið 1996
    2 hr 18 min

More shows like Draumaliðið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

11 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Tveggja Turna Tal by Tveggja Turnatal

Tveggja Turna Tal

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners