Mannlegi þátturinn

Draumanámskeið, eldra fólk á vinnumarkaði og Gróa Finnsdóttir


Listen Later

Valgerður H. Bjarnadóttir kom til okkar í dag. Hún er búsett norður á Akureyri en hefur stutta viðdvöl í höfuðborginni á leið sinni til Lanzarote þar sem hún ætlar að halda draumanámskeið fyrir konur ásamt stallsystur sinni Elísabetu Lorange. Valgerður hefur víða komið við í kvenréttindabaráttunni en hún kom að stofnun Kvennaboðs á Akureyri og var um tíma framkvæmdastýra Jafnfréttisstofu. Í dag einbeitir hún sér meira að sjálfstyrkingu kvenna meðal annars með því að skoða drauma, trúarbrögð og ættfræði.
Óskar Marinó Sigurðsson kemur svo til okkar og við ætlum að ræða við hann um erindi sem hann vann fyrir Vinnueftirlitið fyrir nokkru um áskoranir eldra fólks á vinnumarkaði. Í erindinu byggði Óskar á starfsreynslu sinni sem ráðgjafi fyrir langtíma atvinnuleitendur, þ.e.a.s. einstaklinga sem hafa verið sex mánuði eða lengur á atvinnuleysisskrá og einstaklingum sem hafa þegið fjárhagsaðstoð. Óskar mun segja okkur frá þessu erindi, meðal annars um viðhorf gagnvart eldra fólki og breytingar á vinnuumhverfi sem geta valdið því að færni og kunnátta fólks úreldist.
Gróa Finnsdóttir gaf út sína fyrstu skáldsögu, Hylinn, á síðasta ári en höfundurinn sker sig úr hópi annara ungskálda að því leyti að hún fagnaði 70 ára afmæli sama ár. Gróa hafði legið á sögunni dágóðan tíma en einsett sér að koma bókinni í útgáfu fyrir sjötugsafmælið. Það tókst. Bókin hefur hlotið góðar viðtökur. Við fengum Gróu til að segja okkur frá því að hefja ritstörf á besta aldri.
UMSJÓN ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners