Í tengslum við innleiðingu menntastefnunnar „Látum draumana rætast“ hjá Reykjavíkurborg var haldin tveggja daga vinnusmiðja í Gerðubergi sem byggir á hugmyndafræði samfélagslegrar nýsköpunar. Tilgangur smiðjunnar er annarsvegar að kynnast aðferðum við að þróa skapandi lausnir við nýjum áskorunum í skólastarfi og hinsvegar að skoða hvernig hægt er að skapa lifandi lærdómssamfélag sem styður við lýðræðislega þátttöku, umboð til athafna og leiðtogafærni nemenda með velsæld þeirra og samfélagsins til framtíðar að leiðarljósi, eins og segir í kynningu. Þær Fríða Bjarney Jónsdóttir, deildarstýra í Nýsköpunarmiðju Menntamála hjá Skóla og frístundasviði Reykjavíkur, Anna Birna Georgsdóttir nemandi í Breiðholtsskóla og Hjördís Freyja Kjartansdóttir nemandi í Laugalækjarskóla komu í þáttinn.
Fyrir alla muni, Þáttaröðin, hefur svo sannarlega glatt marga undanfarna sunnudaga en þar er heimur íslenskrar sögu og sagna er kannaður með því að skoða muni sem tengjast sérstökum atburðum í sögu þjóðarinnar. Umsjónarmenn þáttarins eru Viktoría Hermannsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason og gera þessu góð skil. Sigurður Helgi vinnur sem safnvörður í Seðlabankanum og við litum í heimsókn og skoðuðum vinnustaðinn hans og munina sem hann gætir.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni. Í dag fjallaði Magnús aðallega um eiturlyfjabransann sem liggur að mestu gegnum Spán frá Suður Ameríku og Afríku til Evrópu. Til dæmis var það aðeins fyrir nokkrum dögum að spænska lögreglan tók kafbát með þrjú tonn af kókaíni innanborðs. Heimasmíðaðann kafbát sem hafði verið siglt alla leið frá Kólumbíu yfir Atlanshafið til norður Spánar. Eiturlyfin koma til Evrópu aðallega í gegnum Spán.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON