Mannlegi þátturinn

Eggert Gunnarsson í Papúa Nýju Gíneu og maturinn hans Monet


Listen Later

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Eggert Gunnarsson. Hann vann hér á RÚV í sjónvarpinu við framleiðslu á dagskrárefni, heimildarþáttum, tónlistarþáttum og barnaefni. En við fengum hann í þáttinn til að segja okkur frá 5 árum sem komu í kjölfarið á óvæntum tölvupósti sem hann fékk árið 2015. Í póstinum var hann spurður hvort hann hefði áhuga á að taka þátt í rekstri sjónvarpsstöðvar á Papúa Nýju Gíneu. Eggert sagði okkur frá því hvernig þetta atvikaðist og svo auðvitað frá þessum fimm árum sem hann dvaldi hinum megin á hnettinum í hitabeltisloftslagi í landi sem er okkur flestum framandi. Við forvitnuðumst líka um bókina The Banana Garden, vísindaskáldsögu sem hann skrifaði, sem gerist í ekki svo fjarlægri framtíð, þegar margt hefur færst til verri vegar í heiminum vegna þróunar í loftslagsmálum. Eggert Gunnarsson, Papúa Nýja Gínea og The Banana Garden í þættinum í dag.
Í matarspjalli dagsins kom Sigurlaug með matreiðslubókina The Monet Cookbook. Sem sagt matur innblásinn af franska málaranum Claude Monet, en hann var víst mikill sælkeri auk þess að vera frábær málari. Hann skyldi eftir sig bækur fullar af uppskriftum sem Sigurlaug sagði okkur frá í þættinum í dag.
_________________________________________
Tónlist í þættinum:
Úti í eyjum / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon).
Simple Life / Mereani Masani
Daddy / Leonard Kania
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners