Ein Pæling

Ein Pæling

By Thorarinn HjartarsonSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    25

    Followers

  • Typical duration

    68 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Ein Pæling episodes

  • #119 Kjaraviðræður og hagsmunabarátta (Viðtal við Halldór Benjamín Þorbergsson)
    Þórarinn ræðir við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann Samtaka Atvinnulífsins. Rætt er um stöðu SA í atvinnulífi og hagsmunabaráttu launþega, næstkomandi kjarabaráttu, kaupmátt, krónutöluhækkanir, húsnæðismál og fleira. Að lokum er snert á þeim áherslum sem að Halldór telur að Íslandi þurfi að leggja í þróun atvinnulífsins og tengsl þess við akademíuna.
    25 min
  • #118 Kóvid, velferðarsamfélag og PC-menning (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur)
    Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um hvernig sé að starfa á Alþingi, efnahagshorfur fyrir og eftir kóvid, kostnaðinn sem fylgir því að reka gott velferðarsamfélag og fleira. Undir lok samtalsins ræðir Þórarinn við Kristrúnu um rétttrúnaðarvæng Samfylkingarinnar og hvort að flokkurinn þurfi að móta áherslurnar til þess að breiða út faðminn til ólíkarri hópa.
    1 hr 4 min
  • #116 Ríkisfjármál - Aðföng, framboð og peningaprentun (Viðtal við Ólaf Margeirsson)
    Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um ríkisfjármál og stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Rætt er um hvort Landspítalinn geti ráðið til sín það starfsfólk sem að hann þarf, peningarprentun og hvernig ríkið kveikir í peningum, hvort skuldir ríkissjóðs séu áhyggjuefni, vermætasköpun þegar kaupmáttur verður of mikill og pólitískan hvata ríka fólksins til þess að halda húsnæðisverði háu.
    22 min
  • #115 Omicron breytti öllu og Ísland þarf nýja nálgun í baráttunni við Covid-19 (Viðtal við Ragnar Frey Ingvarsson)
    www.patreon.com/einpaeling

    Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson um Covid-19. Ragnar hefur farið mikinn undanfarið en hann telur Omicron breyta faraldrinum og að meta þurfi stöðuna upp á nýtt. Þórarinn ræðir þessi mál við hann. Rætt er um hvernig Covid-deildin var stofnuð. Hvort að við myndum koma til með að bregðast við veiru á borð við Omicron með jafn hörðum aðgerðum í framtíðinni, ógreind krabbamein á tímum Covid-19, opinber fjármál, spurt hvort að læknavísindin séu orðin pólitískari, tjáningarfrelsi læknastéttarinnar, stjórnmálaumræðan og kjaramál.
    53 min
  • #114 Lýsir Verbúðin raunveruleikanum? (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson)
    www.patreon.com/einpaeling
    Verbúðin eru þættir sem sýndir eru á RÚV um þessar mundir. Þættirnir sýna íslenskt samfélag um það leyti sem núverandi kvótakerfi í fiskveiðum var tekið upp. Þórður Snær skrifaði beinskeyttan pistil um þættina. Í pistlinum lýsir hann hvernig íslenskt sjávarútvegskerfi hefur þróast frá þessum árum og hvernig málunum er háttað í dag.

    Þórarinn ræðir við Þórð um bæði þættina og pistilinn. Rætt er um kvótakerfið, orkumál, hagsmunaöfl, lobbíisma, stjórnmál og reynt að komast til botns í því afhverju Þórður Snær er svona öfundsjúkur út í útgerðarmenn.
    56 min
  • #113 Pottormar, #MeToo og uppbyggileg réttvísi (Viðtal við Margréti Valdimarsdóttur)
    Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri.

    Kristín og Þórarinn ræða við Margréti um pottormana sem komust með nýjum hætti í sviðsljósið þegar að ung kona, Vítalía Lazareva, steig fram og lýsti atburðarrás í heitapotti með þeim við sumarbústað.

    Umræðurnar snúa að stöðu fjölmiðla í kynferðisafbrotamálum, valdaójafnvægi, persónufrelsi, fórnarkostnaði #MeToo baráttunnar, sáttamiðlun og uppbyggilegri réttvísi, aktívisma, réttarkerfinu, rasisma, frjálsum vilja og barnagirnd.
    1 hr 10 min
  • #112 Elítur og valdakerfi á Íslandi (Viðtal við Gunnar Helga Kristinsson)
    Gunnar Helgi Kristinsson er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í nýrri bók Gunnars fjallar hann um elítur á Íslandi, hvernig mismunandi elítuhópar tengjast og um áhrif þeirra á samfélagið.

    Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Gunnar um hvað sé elíta, hverjir á Íslandi tilheyri þeim hópi, um muninn á lokuðum og opnum elítukerfum, hvort hægt sé að verja pólitískar stöðuveitingar, um fjölmiðlaelítuna og áhrif fjölmiðla á elítur.

    Að lokum er spurt hvort nýtilkomið mál Vítalíu Lazarevu hafi breytt hugmyndum okkar um valdatengsl elíta og hins almenna borgara.
    32 min
  • #111 Að upplifa stríð (Viðtal við Jasmínu Vajzovic Crnac)
    www.patreon.com/einpaeling

    Á árunum 1992 til ársins 1995 geysuðu hryllileg átök í Bosníu. Þetta voru umbreytingatímar þar sem mikil spenna í Júgóslavíu leiddi til stríðs, þjóðarmorðs, nauðgunarbúða og annarskonar hroðaverka. Jasmina Vajzovic Crnac kom ung að aldri til Íslands sem flóttamaður eftir að hafa þurft að flýja Bosníu. Í þessu viðtali lýsir Jasmína upplifuninni af því að búa við stríðsástand, menningu og pólitík Bosníu, alþjóðleg áhrif, þá varhugaverðu leið sem að landið virðist vera að stefna á í dag og hvað Jasmína telur að muni koma til með að gerast á næstu árum.

    www.patreon.com/einpaeling
    23 min
  • #110 Nýársþáttur 2022
    Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða ýmis mál sem áttu upp á pallborðið árið 2021. Rætt er um KSÍ, #MeToo, samfélagsmiðla, stöðu landspítalans, hvort að hægt sé að taka viðtal við Sölva Tryggva og fleira.
    42 min

More shows like Ein Pæling

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners