
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti fjalla ég um hvaða áhrif samfélagsmiðla sumarfríið hafði á mig. Ég fjalla um hvaða leiðir ég ætla að fara til þess að minnka áreiti og setja skýr mörk fyrir mitt líf svo að lífið verði einfaldara.
Í þessum þætti fjalla ég um leiðir til að einfalda sumarið og njóta þess betur. Ég ætla að practise what I preach næstu vikurnar og einfalda lífið mitt með því að taka góða hleðslupásu.
Þetta er því síðasti þátturinn í bili. Takk fyrir að hlusta. Hlaðvarpið Einfaldara líf fer aftur í loftið í ágúst 2021.Í þessum þætti fjalla ég um samfélagsmiðlanotkun. Samfélagsmiðlanotkun hefur aukist hjá börnum og ungmennum og því mikilvægt fyrir okkur foreldra að vera vakandi yfir því sem er að gerast í heimi samfélagsmiðla.
Það kemur að því að þessu lífi líkur. Við fáum öll ákveðinn tíma hér á jörðu. Sum okkar munu eiga langa ævi. Sum munu eiga styttri ævi. Við höfum ekki stjórn yfir því. Það eina sem við getum gert er að taka einn dag í einu. Það kemur að því einn daginn að það styttist í annan endann og það kemur að því einn daginn að við horfum til baka á það hvernig við höfum lifað lífi okkar. Í þessum þætti fjalla ég um mikilvægi þess að lifa lífi sínu þannig að við séum sátt. Ef þú vilt lifa lífi þínu þannig þá er þessi þáttur fyrir þig.
í þessum þætti fjalla ég um praktískar og einfaldara leiðir til að tækla mammviskubit.
Mammviskubit = Sú yfirþyrmandi tilfinning að vera ekki að gera nóg eða gera hlutina ekki rétt sem móðir.
Í þessum þætti fjalla ég um það hversu eðlilegt það er að upplifa upp, niður og flata tíma (um stund) í lífinu. Hvað getum við gert til að komast í meira jafnvægi á þannig tímum. Í þessum þætti deili ég því með ykkur hvað ég gerði síðasta þegar ég átti niður tímabil.
www.gunnastella.is
Í þessum þætti fjalla ég um óvissutíma og erfiðleika. Hvað getum við gert til að upplifa betri líðan mitt í storminum? Hvað getum við gert til að hjálpa börnunum okkar sem þrá ekkert heitar en að lifa "eðlilegu" lífi?
Í þessum þætti fjalla ég um nokkur atriði sem eru að hjálpa mér sérstaklega mikið að einfalda lífið þessa dagana.
Heimasíða
Facebook hópur
Í þessum þætti fjalla ég um verkfæri sem ég hef nýtt mér á minni vegferð í átt að einfaldara lífi. Verkfæri sem ég hvet þig eindregið til að nýta þér í þínu lífi.
Facebook hópurinn Einfaldara líf
Heimasíðan
Í þessum þætti fjalla ég um mikilvægi þess að börn, unglingar og fullorðið fólk hafi eitthvað í lífi sínu sem huggar og róar taugakerfið. Hlustaðu á þennan til að fá verkfæri í hendurnar til að grafa eftir þessari auðlind.
Facebook hópur
Heimasíða
From the publisher's feed