Einfaldara líf

Einfaldara líf

Download on the App Store

Einfaldara líf episodes

  • 08. Hvernig getum við endurræst okkur á nýju ári?

    Það er komið nýtt ár og við hoppum af gleði. Er það af þvi að það er komið nýtt ár eða út af því að árið 2020 er liðið? 

    Í þessum þætti fjalla ég um það hvernig við getum endurræst okkur og hafið nýtt ár með því að núllstilla okkur andlega og líkamlega. 

    www.gunnastella.is

    17 min
  • 07. Frábær leið til að setja sér markmið fyrir nýtt ár

    Í þessum þætti fjalla ég um leið sem ég nota til að setja mér markmið fyrir hvert ár. Í upphafi ársins 2020 grunaði mig ekki að sú leið sem ég valdi þá myndi verða eins mikilvæg og hún var. Ég hvet þig til að hlusta á þennan þátt ef þú vilt nota einfalda leið til að setja þér markmið og hafa gaman af vegferðinni líka. 

    www.gunnastella.is 

     

    16 min
  • 06. Bless bless, jólastress!

    Í þessum þætti gef ég ykkur innsýn inn í fallega jólasögu sem ég heyrði þegar ég var 17 ára gömul. Þessi saga hefur líklega verið byrjunin á því sem ég vil kalla vegferðin í átt að einfaldara lífi. Einfaldara líf hefur líka gert það að verkum að allur jólaundirbúningur verður einfaldari og ég get sagt hærra og hærra með hverju árinu, Bless, bless jólastress! 

    Einfaldara líf er líka í boði fyrir þig!  

     

     

    14 min
  • 05. Settu súrefnisgrímuna fyrst á þig - viðtal við Barböru H. Þórðardóttur Fjölskyldufræðing

    Í þessum þætti af Einfaldara líf spjalla ég við Barböru H. Þórðardóttur sem starfar sem Fjölskyldufræðingur hjá Lausninni. Barbara er gift og á fullt hús af börnum. Hún hefur stórt hjarta og þráir ekkert heitar en að hjálpa fólki að finna von. Við spjöllum um hvað skilgreinir okkur sem einstaklinga, fjölskylduna, jólahefðir og margt fleira. 

    56 min
  • 04. Er hægt að einfalda lífið?

    Í þessum þætti fjallar Gunna Stella um af hverju hún byrjaði að þá vegferð sem hún kallar vegferðin í átt að Einfaldara lífi.  Hún fjallar um hver eru góð fyrstu skref og hvar er best að byrja. 

     

    23 min
  • 03. Takið af ykkur skóna, ég ætl´að bóna - eða EKKI!

    Dásamlegi desember. Öðruvísi aðventa framundan. Takið af ykkur skóna ég ætl´að bóna! 

    Í þessum þætti fjallar Gunna Stella um listann langa, þakklæti og allt sem tengist "ég þarf" v´s "ég vil" og svo má nú ekki gleyma nýrri skilgreiningu á Einfaldari aðventu! 

    Einfaldari aðventa er ...

     

    17 min
  • 02. Aðventan, aðventukransinn og jólagjafainnkaupin sjálf!

    AðventaN, aðventukransinn, jólagjafirnar og allt það!

    Hvernig er hægt að einfalda þetta allt saman og njóta þess um leið? Í þessum þætti fjallar Gunna Stella einmitt um þessi mál. Skelltu því heyrnartólunum í eða á eyrun, sestu niður eða farðu jafnvel í göngutúr á meðan þú hlustar. Njóttu vel! 

    Smelltu hér ef þú vilt nálgast Jóladagatal Einfaldara lífs! 

     

    22 min
  • 01. Einfaldari aðventa

    Aðventan getur verið streituvaldandi tími. Í þessum þætti fjallar Gunna Stella um nokkrar leiðir sem hún og  fjölskyldan hafa nýtt sér til þess að einfalda aðventuna.

    Í þættinum fjallar hún einnig um samverudagatal sem hún kallar jóladagatal Einfaldara lífs. Þú getur nálgast jóladagatal Einfaldara lífs algjörlega ókeypis á heimasíðunni www.gunnastella.is

    17 min
  • Hvernig er hægt að einfalda aðventuna?
    Í þessum þætti fjalla ég um ástæðu þess að ég hóf þá vegferð að einfalda lífið. Einnig fjalla ég um ástæðu þess að fólk getur upplifað aðventuna streituvaldandi tíma. Einnig deili ég leiðum sem ég nota til að gera aðventuna einfaldari og betri.
    16 min

About Einfaldara líf

From the publisher's feed

Þetta er hlaðvarpið Einfaldara líf. Ég er kölluð Gunna Stella. Ég er eiginkona, fjögurra barna móðir og fósturmóðir sem elskar ferðalög, göngutúra og góðan mat. Síðastliðin ár hef ég yfirfært hugtakið einfaldara líf yfir á það sem ég geri dags daglega. Hvort sem það tengist heimilinu, fjölskyldunni, vinnunni eða áhugamálunum. Þetta hefur hjálpað mér að læra að njóta lífsins betur og einblína á það sem skiptir mig mestu máli.