Einfaldara líf

Einfaldara líf

Download on the App Store

Einfaldara líf episodes

  • 18. Hugarró heima - Já takk!

    Í þessum þætti fjalla ég um leiðir sem hægt er að fara til að upplifa meiri hugarró heima. Ég fjalla um leiðir sem ég hef farið og hvernig það hefur nýst okkur fjölskyldunni. Þetta eru ekki flóknar aðferðir en klárlega aðferðir sem hafa virkað og munu geta virkað fyrir þig. 

    Facebook hópur 

    Bókin Einfaldara líf 

    25 min
  • 17. Tíu skotheld ráð til að einfalda lífið

    í þessum þætti fjalla ég um tíu skref sem er gott að taka til að byrja að einfalda lífið. Þessi þáttur er fyrir þig ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja eða vantar smá "spark" í rassinn til að halda áfram á vegferðinni í átt að einfaldara lífi.

    11 min
  • 15. Er flýtiveiki raunveruleg?

    Í þessum þætti fjalla ég um flýtiveikina sem hefur hrjáð mig árum saman. Er til mótefni gegn henni? Þetta er einmitt umfjöllunarefni þáttarins og er klárlega fyrir þig ef þú átt erfitt með að hægja á. 

    22 min
  • 13. Það er mikilvægt að leyfa sér að dreyma!

    Í þessum þætti fjalla ég um mikilvægi þess að leyfa sér að dreyma. Ég fjalla um drauma sem ég hef átt og á í dag. Ég fjalla um aðferð sem ég nota til þess að átta mig á hvert ég vil stefna í lífinu. Þessi þáttur gefur þér verkfæri í hendur til að horfa fram á við.  Það eru margir sem þora ekki að leyfa sér að dreyma eða taka skref í átt að draumum sínum. Leyfir þú þér að dreyma? 

    Facebook hópurin Einfaldara líf - opinn hópur

     

     

    18 min
  • 12. Hvernig er best að takmarka áreiti?

    Í þessum þætti gef ég ykkur innsýn í tímabil í lífi mínu þar sem ég þurfti að takmarka áreiti til muna. Ég varð að fá næði til að hugsa og vera. Einfaldara líf snýst líka um að taka stjórn yfir tíma sínum og lífi. Þessi þáttur er fyrir þig ef þú vilt læra að vera ekki bara gera! 

    13 min
  • 11. Tæki og tól til að upplifa meiri hugarró

    Í þessum þætti gef ég ykkur innsýn inn í það hvernig ég tekst á við erfiðar tilfinningar. Ég fjalla líka um nokkur tæki og tól sem ég hef nýtt mér til að upplifa meiri hugarró. Líka í miðjum heimsfaraldri. 

    Smelltu hér ef þú vilt vera með í Facebook hópnum Einfaldara líf - opinn hópur. 

     

     

     

    20 min
  • 09. Getur maður haft helling að gera en samt lifað einfaldara lífi?

    Sumir halda að einfaldara líf snúist um það að gera ekki neitt, liggja upp í sófa og horfa á Netflix. Er það svo? Í þessum þætti útskýri ég hvernig hægt er að lifa einfaldara lífi þegar maður hvílir sig og þegar maður hefur nóg að gera. 

    Í þessum þætti fjalla ég einnig um það hvernig hægt er að forgangsraða og hafa stjórn yfir dagatalinu og tíma sínum. 

    Facebook hópurinn Einfaldara líf - opinn hópur 

     

     

    16 min

About Einfaldara líf

From the publisher's feed

Þetta er hlaðvarpið Einfaldara líf. Ég er kölluð Gunna Stella. Ég er eiginkona, fjögurra barna móðir og fósturmóðir sem elskar ferðalög, göngutúra og góðan mat. Síðastliðin ár hef ég yfirfært hugtakið einfaldara líf yfir á það sem ég geri dags daglega. Hvort sem það tengist heimilinu, fjölskyldunni, vinnunni eða áhugamálunum. Þetta hefur hjálpað mér að læra að njóta lífsins betur og einblína á það sem skiptir mig mestu máli.